Silfuröld revíunnar

9. þáttur. Erum við þá svona?

Á Suðurnesjum hefur verið mikið um revíur á síðustu þremur áratugum, og hafa Ómar Jóhannesson og Hulda Ólafsdóttir átt drjúgan þátt í þeim. Einnig verður í þessum þætti fjallað um revíur í Mosfellsbæ og revíur Hugleiks í Reykjavík upp úr 1990.

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Silfuröld revíunnar

Silfuröld revíunnar

Í Silfuröld revíunnar verður fjallað um íslenskar revíur frá 1960 og til okkar daga. Margir halda svo til engar revíur hafi verið samdar hér á þeim tíma, en þær eru fleiri en ætla mætti. Það vita t.d. ekki allir lögin „Úti í Hamborg" eftir Jón Sigurðsson, „Kvöldljóð" eftir Jónas Jónasson og „Segðu mér það, vindur" eftir Geirmund Valtýsson eru upphaflega revíulög. Meðal rithöfunda sem komið hafa við sögu revíunnar á þessum áratugum eru Jökull Jakobsson, Þórarinn Eldjárn og Þorvaldur Þorsteinsson, og af tónskáldum nefna Magnús Ingimarsson, Gunnar Þórðarson og Hjálmar H. Ragnarsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,