Litla flugan

Danshljómsveitir í útvarpssal #1

Dregin fram gömul segulbönd með þremur íslenskum danshljómsveitum, sem oft voru gestir í útvarpssal á árum áður: Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar, hljómsveit Hauks Morthens og hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Upptökurnar eru frá árunum 1972-3 og þar hljóma lög af efnisskrá Herb Alpert; gömlu dansarnir; nýjustu smellirnir, og sígild íslensk lög, þ.á.m Ég leitaði blárra blóma og Litla stúlkan. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

14. júní 2014

Aðgengilegt til

8. nóv. 2024
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,