Litla flugan

I'm in the mood for love

Litla flugan heilsar hlustendum eftir langan vetrardvala og fagnar sumri með lögum um ástina. Meðal flytjenda Quincy Jones, Spilverk þjóðanna, Monica Zetterlund og Stan Getz. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

17. maí 2014

Aðgengilegt til

11. okt. 2024
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

,