Litla flugan

Laugardagskvöld

Dregnar fram gamlar hljómplötur með barnalögum, m.a. með brúðustráknum Konna, og Guðmundur Jónsson syngur verðlaunalag Sigfúsar Halldórssonar, Dagný. Úr segulbandasafninu birtist fágæt hljóðritun frá árinu 1961 með harmóníkutríói Ásgeirs Sverrissonar og einnig koma sænsku skáldin Bellman og Fröding nokkuð við sögu. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

5. júlí 2014

Aðgengilegt til

29. nóv. 2024
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,