Litla flugan

Spela en klämmig melodi

Litla flugan flýgur hring um gamla Kalmar-sambandið; Noreg, Svíþjóð og Danmörku, og dustar rykið af norrænu tungumálakunnáttunni í ljósi nýjustu fregna um áhuga Íslendinga á því sameinast norsku þjóðinni á nýjan leik. Hedemark-sextettinn, Lily og Peter, Thore Skogman og Sven-Ingvars sjá hlustendum fyrir dans og söng norrænum sið. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

2. ágúst 2014

Aðgengilegt til

27. des. 2024
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,