Litla flugan

Út í kvöld

Litla flugan rennur malarvegi æskunnar í sólvermdum rykmekki, á fararskjótum af ýmsu tagi: stokkið á stöng, hjólað á Möwe, ekið í amerískum dreka. Gamlir skemmtistaðir rifjaðir upp með Pónik og Stuðmönnum, og boðið upp í dans, m.a. eldheitan tangó með húshljómsveit Litlu flugunnar, og vangadans við söng og undirleik Nat King Cole. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

24. maí 2014

Aðgengilegt til

18. okt. 2024
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,