Stuð á Orkumótinu í Eyjum, hálendisvaktin í Landmannalaugum og Jónsmessuhátíð
Það er mikil stemning í Eyjum þar sem fleiri hundruð fótboltakappar etja nú kappi á Orkumótinu. Jóhann Alfreð var á ferðinni og hitti þar marga skemmtilega gesti og heimamenn. Hann ræddi meðal annars við Heimi Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara sem var staddur á mótinu, Sigríði Ingu Kristmannsdóttur, mótstjóra mótsins, Kára Kristján Kristjánsson, handboltakappa og Eyjamann og loks rakst hann á Ólaf Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóra Herjólfs við bryggjuna í Eyjum.
Við ferðuðumst víðar um landið. Steiney sendi síðasta póstkortið frá Vestfjörðum - alla vega í bili. Hún tók viðtal við Sögu Björgvinsdóttur sem á Íslandsmetið í hreystigreip. Saga náði þeim ótrúlega árangri að hanga á slánni í 30 mínútur og 6 sekúndur - geri aðrir betur.
Hálendisvakt Landsbjargar hóf störf í vikunni en alls munu 26 björgunarsveitir skiptast á að standa vaktina í Landmannalaugum. Súlur á Akureyri riðu á vaðið og taka fyrstu dagana. Hjá mér á línunni var hópstjórinn Elva Dögg Pálsdóttir. Hún sagði okkur hvernig fyrstu dagarnir hafa gengið.
Undir lok þáttar heyrðum við frá Eyrarbakka en þar er Jónsmessuhátíð haldin um helgina. Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur kom til okkar á miðvikudag og sagði okkur frá þjóðtrú tengdri Jónsmessu. Í dag var Ragna Jónsdóttir, ein af skipuleggjendum hátíðarinnar, á línunni. Við ræddum við hana um hvað væri fram undan á Eyrarbakka.
Birt
26. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.