Lokaþáttur Félagsheimilisins.
Síminn var meira og minna opin í allan dag. Lokaþáttur Félagsheimilisins þetta sumarið var hressandi og landsmenn tóku virkan þátt í lagavalinu.
Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur tekið við lyklavöldunum og má búast við að hann herði reglurnar innanhúss til muna. „Ég mun auðvitað sakna Sigga míns en tek glaður við húsvarðarstarfinu því ég sakna jafnvel enn meira að vera í sambandi við fólkið í landinu, spila hressandi tónlist og sleppa öllum leiðindum. Ég vil samt enga hlustendur sem eru í átaki eða megrun. Hér eru bara brauðtertur og uppáhellingur upp um alla veggi.” segir Friðrik Ómar.