Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum við konurnar sem flestar eru ekkjur presta, kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina. Hægt er að nálgast þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins.
Rætt er við við Rósu Blöndals og les stutt brot úr bókum hennar.
Umsjón: Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Aðstoð við dagskrárgerð Ævar Kjartansson.
Stef þáttarins er Sælir eru þeir eftir Inga T. Lárusson, leikið af Kristínu Axelsdóttur í Grímstungu á Hólsfjöllum.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum er flutt tónlist eftir þýska tónskáldið Max Bruch og tvo nemendur hans. Bruch fæddist 1838 og lést 1920. Hann er einkum frægur fyrir fiðlukonsert sinn nr.1 í g-moll. Konsertinn varð fljótt vinsæll og það olli Bruch gremju að síðari fiðlukonsertar hans, nr.2 og 3, féllu algjörlega í skuggann af hinum fyrsta. Í þessum þætti fá hlustendur samt að heyra 1. kafla fiðlukonserts Bruchs nr.3 í d-moll. Einnig verða flutt píanóverk eftir Clöru Faisst og kafli úr fiðlusónötu eftir Ottorino Respighi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Kristbjörgu Héðinsdóttur sem fædd er og uppalin á Húsavík og hefur alið mestan sinn aldur þar. Hún var enn á barnsaldri þegar hún fór að stokka upp og beita. Hún segir frá því að stúlkur hafi verið í meirihluta þeirra sem beittu undir Bakkanum á Húsavík þegar hún var ung. Kristbjörg var í línubandalagi með nokkrum stúlkum öðrum, svo að engin tapaði ef flæktist hjá henni til dæmis, og þessar vinkonur léku líka saman handbolta með góðum árangri. Kristbjörg segir frá ýmsu sem tengist smábátaútgerðinni á árum áður en líka síldarvinnu og verkun saltfisks. Þá er einnig rætt við Ingólf Lárusson sem ólst upp í Fagradal í Vopnafirði frá 9 ára aldri. Fagridalur var afskekktur bær en þar var mannmargt, yfirleitt tvær til þrjár fjölskyldur, því marga þurfti til að sækja sjóinn á árabátum og vinna ýmis störf. Ingólfur segir frá sjóróðri þegar fiskaðist vel, ræðir um fráfærur sem enn voru stundaðar í Fagradal þegar hann var strákur og fleira.
Veðurstofa Íslands.
Hver var fyrsta íslenska minningargreinin? Af hverju skrifa Íslendingar svona persónulega um látið fólk? Eiga greinarnar að vera í 2. eða 3. persónu? Hver skrifar? Um hvern? Má tala um sjálfsvíg? Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar? Eru minningargreinar Moggans í lífshættu? Verða minningargreinar - einn daginn - minningar einar?
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Í dag fá flestir Íslendingar um sig eftirmæli í Morgunblaðinu. Syrgjendur senda inn hugleiðingar sínar og minningar um hinn látna og búið er um þær af kostgæfni. En hvernig er að vinna við að lesa minningargreinar alla daga? Í þættinum er rætt við Styrmi Gunnarsson, fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins og Guðlaugu Sigurðardóttur, framleiðslustjóra Morgunblaðsins sem og Hjalta Stefán Kristjánsson, fyrrum umsjónarmann minningargreina. Eins eru rifjuð upp mistök í minningargreinum og dánartilkynning sem send var inn um lifandi mann.
Guðsþjónusta.
Séra Sigríður Kristín Helgadóttir predikar.
Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari.
Organisti Guðjón Halldór Óskarsson.
Kirkjukórar Odda- og Breiðabólstaðarprestakalla syngja.
Lesari upphafsbænar: Sigríður Karolína Viðarsdóttir meðhjálpari.
Útvarpsfréttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum eftir að þingmenn hans samþykktu frumvarp um kvótasetningu á Grásleppu. Hún segist skilja við flokkinn með sorg í hjarta.
Tugir mála voru afgreidd á Alþingi rétt fyrir þinglok seint í gærkvöldi og mörg ný lög sett sem varða sölu ríkiseigna, heimildir lögreglu, mannréttindi og umhverfis- og orkumál.
Svo virðist sem hraunkæling og styrking varnargarða hafi gefið góða raun í baráttunni við að hemja hraunflæði yfir varnargarðana við Sýlingarfell. Enn er sprautað á hraunið sem virðist ekki lengur renna fram.
Maður sem er sakaður um að hafa stungið tvo menn í Kópavogi um helgina hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þeir sem urðu fyrir árásinni voru fluttir á bráðamóttöku annar þeirra með lífshættulega áverka.
Ísraelskir hermenn bundu særðan Palestínumann við jeppa í gær og óku með hann um borgina Jenin. Herinn ætlar að rannsaka málið.
Í dag er ár síðan leiðtogi Wagner-liða gerði uppreisn gegn stjórnvöldum í Rússlandi. Talið er að flestir liðsmenn Wagner berjist nú fyrir ýmsar deildir Rússlandshers.
Þátturinn er í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga. (Áður á dagskrá 2009)
Í þættinum í dag munu þáttastjórnendur skoða nokkrar nýjar garðhugmyndir, eða réttara sagt, nýjar útfærslur á gömlum hugmyndum. Letigarðar eru eitt þessara fyrirbæra og eru þeir fyrir fólk sem vill sleppa við að vera á fjórum fótum út í garði. Grendargarðar í Reykjavík, er nýtt tilraunaverkefni á vegum Garðyrkjufélag Íslands og Reykjavíkurborgar og þriðji og síðasti garðurinn sem verður skoðaður er eldhúsgarðurinn sem Hildur Hákonardóttir og Guðrún Tryggvadóttir hafa verið að þróa á vefsíðunni www.nattura.is. Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur gefur nokkur góð ráð við sniglafaraldri og þátturinn endar svo í Hveragerði þar sem sýninginn Blóm í bæ.
Hljóðritanir frá tónleikum á Listahátíð 2024.
Hljóðritun frá tónleikum tenórsöngvarans Benedikts Kristjánssonar og tónlistarhópsins Ensemble Adapter sem fram fóru í Breiðholtskirkju 12. júní s.l.
Á efnisskrá:
*Raddir úr blámanum, söngvasveigur fyrir tenór og kammersveit eftir Þuríði Jónsdóttur - frumflutningur.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða.
Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingum í alþjóðamálum.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Veðurstofa Íslands.
Í þáttunum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir fyrri tíðar hér á landi og settir fram eins og um nútíma fréttir sé að ræða.
Fréttalesarar eru Sigvaldi Júlíusson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Hermann Sveinbjörnsson.
Umsjónarmaður: Jón Gauti Jónsson.
Í þættinum er rifjaðir upp helstu atburðir 13. aldar í anda hefðbundins fréttatíma.
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Dúettinn Ingibjargir flytur lag sitt, Annars hugar, við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur.
Sean Shibe gítarleikari flytur verkið La catedral eftir Agustín Barrios Mangore. Verkið er í þremur þáttum: I (Preludia (Suadade); II (Andante religoso) og III Allegro solemne.
Sellóleikarar úr Fílharmóníusveit New York-borgar flytja Bachiana Brasileira nr. 5 eftir Heitor Villa-Lobos. Leonard Bernstein stjórnar. Einleikari á selló er Carl Stern. Með þeim syngur Nethania Davrath. Verkið er í tveimur þáttum: I. Aria (Cantilena). Adagio. - II. Dansa (Martelo).
Píanóleikarinn Éric Le Sage, sellóleikarinn er Aurélien Pascal og klarínettuleikarinn Paul Meyer flytja Andante úr Tríói fyrir klarínettu, selló og píanó eftir Nino Rota.
Kammerkór Norðurlands flytur lag Páls Ísólfssonar, Ég beið þín lengi, lengi við ljóð Davíðs Stefánssonar. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Voces 8 flytur Momentary eftir Ólaf Arnalds. Með þeim leikur hörpuleikarinn Oliver Wass.
Kammersveit Reykjavíkur flytur Entropy : I. Arrow of Time og Entropy : II. Asymmetry of Time (Hommage à Olivier Messiaen).
Ingibjargir flytja lag sitt, Angist við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér er tekið saman efni og lesið úr Í ljósi minninganna, bernskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965) frá Miklabæ. Hún lýsir á fallegan og næman en um leið hispurslausan hátt uppvexti í Skagafirði, þar sem lífið var svo rólegt og fábreytt að koma vegavinnumanna var sannkallað ævintýri og molasykur var ígildi hins stóra heims.
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Það er óhætt að segja að víðsýni vaffhálsmálspeysunnar hafi verið stjórnanda þáttarins ofarlega í huga við tónlistarval; slík er fjölbreytnin. Hér ægir ýmsu saman, innlendu sem erlendu og á meðal flytjenda má nefna Stevie Wonder og XTC.
Í þessum þáttum mun Viktoría Blöndal fara yfir dansgólf sveitaballana í kringum aldamótin. Sviti, djamm, glimmer, grátur, stemning, tónlistin sem þið hélduð að þið væruð búin að gleyma. Viktoría mun leiða hlustendur um víðan völl, um allt land og í misdjúpa dali tímans með hjálp viðmælenda sinna.
Við erum öll þakklát fyrir að ekki fór verr. Hvað gerðist þegar þessi böll dóu út og hverju var sópað undir gólf fjalirnar og hvað er það sem við skildum eftir inn í þessum dauðagámum? Við ætlum líka að ræða um trúnóin sem voru inn á hverju klósetti og öll tárin sem flæddu í stríðum
straumum.
Útvarpsfréttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum eftir að þingmenn hans samþykktu frumvarp um kvótasetningu á Grásleppu. Hún segist skilja við flokkinn með sorg í hjarta.
Tugir mála voru afgreidd á Alþingi rétt fyrir þinglok seint í gærkvöldi og mörg ný lög sett sem varða sölu ríkiseigna, heimildir lögreglu, mannréttindi og umhverfis- og orkumál.
Svo virðist sem hraunkæling og styrking varnargarða hafi gefið góða raun í baráttunni við að hemja hraunflæði yfir varnargarðana við Sýlingarfell. Enn er sprautað á hraunið sem virðist ekki lengur renna fram.
Maður sem er sakaður um að hafa stungið tvo menn í Kópavogi um helgina hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þeir sem urðu fyrir árásinni voru fluttir á bráðamóttöku annar þeirra með lífshættulega áverka.
Ísraelskir hermenn bundu særðan Palestínumann við jeppa í gær og óku með hann um borgina Jenin. Herinn ætlar að rannsaka málið.
Í dag er ár síðan leiðtogi Wagner-liða gerði uppreisn gegn stjórnvöldum í Rússlandi. Talið er að flestir liðsmenn Wagner berjist nú fyrir ýmsar deildir Rússlandshers.
Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur tekið við lyklavöldunum og má búast við að hann herði reglurnar innanhúss til muna. „Ég mun auðvitað sakna Sigga míns en tek glaður við húsvarðarstarfinu því ég sakna jafnvel enn meira að vera í sambandi við fólkið í landinu, spila hressandi tónlist og sleppa öllum leiðindum. Ég vil samt enga hlustendur sem eru í átaki eða megrun. Hér eru bara brauðtertur og uppáhellingur upp um alla veggi.” segir Friðrik Ómar.
Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson er vinsæll um þessar mundir og hann kíkti í kaffi til Friðriks og þeir slógu á létta strengi með hlustendum. Tímaflakkið var á sínum stað og hlustendur tóku virkan þátt. Jónsmessunótt er framundan þennan sólarhringinn og Friðrik fór yfir sögu hennar en hún er talin ein af fjórum mögnuðustu nóttum ársins en hinar eru jólanótt, nýársnótt og þrettándanótt.
Tónlistin:
ICY - Gleðibankinn.
ELTON JOHN - Island Girl.
KUSK - Sommar.
SYKUR - Reykjavík.
Helgi Björnsson - Ég Skrifa Þér Ljóð Á Kampavínstappa.
BRÍET & ÁSGEIR - Venus.
STEVE MILLER BAND - The Joker.
EVERLY BROTHERS - All I Have To Do Is Dream.
Bubbi Morthens - Brotin Loforð.
THE CURE - Close To Me (orginal).
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
MÍNUS - The Long Face.
PÁLL ÓSKAR - Stanslaust stuð.
TWO DOOR CINEMA CLUB - What you know.
Teddy Swims - The Door.
Caldwell, Bobby - What You Won't Do For Love.
Lónlí blú bojs - Mamma grét.
SANTANA & ROB THOMAS - Smooth.
AMERICA - A Horse With No Name.
Ásdís - Flashback.
Summer, Donna - Last dance.
Backstreet Boys - I want it that way.
Grýlurnar - Sísí.
Terrell, Tammi - Ain't no mountain high enough.
MADONNA - Like A Prayer.
Lady GaGa - Born This Way.
Ragnar Bjarnason - Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig.
STEVIE WONDER - Signed, Sealed, Delivered.
Mannakorn, Mannakorn - Komdu í partí.
HARRY STYLES - Watermelon Sugar.
Jamiroquai - Seven days in sunny june.
Pónik og Einar - Léttur í lundu.
HÁRIÐ - Að eilífu.
Ríó tríó - Allir eru að gera það.
Nýdönsk - Nostradamus.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Ég er eins og ég er.
OMD - Enola Gay.
REMBRANTS - Ill Be There For You (Theme From Friends).
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Retro Stefson er hampað sem líflegasta bandi landsins og Ekki vanmeta Pascal Pinon, Ylja flytur angurværa þjóðlagatónlist, Kiriyama Family heillar landann með grúvknúnu mjúkpoppi og Bubbi segir sögur úr þorpinu. Þórunn Antonía og Berndsen rugla saman reytum sínum, Friðrik Dór er vélrænn, The Vintage Caravan fer í ferðalag og Stúlknatríóið Charlies reynir við ameríska drauminn. Það er sumar hvern einasta dag hjá Mannakorni, Hreimur Örn er agndofa, Skálmöld berst við börn Loka, og Helgi Júlíus hvetur Íslendinga til að standa saman.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í öðrum hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2012 eru: Unnsteinn Manúel Stefánsson, Haraldur Leví Gunnarsson, Bjartey Sveinsdóttir, Guðný Gígja Skjaldardóttir, Víðir Björnsson, Karl Magnús Bjarnason, Jónas Sigurðsson, Bragi Valdimar Skúlason, Guðmundur Kristinn Jónsson, Magnús Eiríksson, Jófríður Ákadóttir, Ásthildur Ákadóttir, Bubbi Morthens, Daði Birgisson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Davíð Berndsen, Friðrik Dór Jónsson, Þorkell Máni Pétursson, Alma Guðmundsdóttir, Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir, Klara Ósk Elíasdóttir, Þráinn Árni Baldvinsson og Björgvin Sigurðsson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Retro Stefson - Qween
Retro Stefson - Julia
Retro Stefson - Glow
Retro Stefson - She Said
Ylja - Konan með sjalið
Ylja - Á rauðum sandi
Ylja - Út
Kiriyama Family - Sneaky Boots
Kiriyama Familiy - Weekends
Kiriyama Familiy - Heal
Kiriyama Family - Portobello
Mannakorn - Sumar hvern einasta dag
Mannakorn - Á meðan sumar framhjá fer
Mannakorn - Vals númer tvö
Sálin hans Jóns míns - Hjartadrottningar
Lay Low - The Backbone
Andrea Gylfadóttir - Prinsessan (Live Stúdíó 12)
Hreimur Örn Heimisson - Agndofa
Bryan Ferry - Love Is The Drug (Live í Hörpu)
The Vaccines - Ó Reykjavík (Live í Listasafninu)
Pascal Pinon - Ekki vanmeta
Pascal Pinon - Somewhere
Pascal Pinon - Þerney
Bubbi Morthens - Óskin
Bubbi Morthens - Fjórtán öskur á þykkt
Bubbi Morthens - Þorpið
Þórunn Antónía - For Your Love
Þórunn Antónía - Out Of Touch
Þórunn Antónía - Too Late
Þórunn Antónía - So High
Þórunn Antónía - Electrify My Heartbeat
Friðrik Dór - Út að heimsenda
Friðrik Dór - Guðdómleg
The Vintage Caravan - Going Home
The Vintage Caravan - Midnight Meditation
The Vintage Caravan - Do You Remember
The Charlies - Fighter On The Dance Floor
The Charlies - Game Over
Bruno Mars - Just The Way You Are
The Charlies - Monster (eat me)
The Charlies - Hello Luv
Skálmöld - Gleipnir
Skálmöld - Narfi
Skálmöld - Miðgarðsormur
Helgi Júlíus og Valdimar - Stöndum saman
Helgi Júlíus og Valdimar - Þú ert mín
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Raftónlistartvíeykið ClubDub samanstendur af þeim Brynjari Barkasyni og Aroni Kristni Jónassyni. Þeir voru að senda frá sér plötuna Risa tilkynning og segja hana vera það besta sem hefur verið gefið út hérlendis.
Þeir settust niður með Völu Eiríks og ræddu tónlistina, vináttuna, slúðursögurnar og sögðu okkur frá þessari nýlentu plötu.