Í boði náttúrunnar

Þriðji þáttur

Í þættinum í dag munu þáttastjórnendur skoða nokkrar nýjar garðhugmyndir, eða réttara sagt, nýjar útfærslur á gömlum hugmyndum. Letigarðar eru eitt þessara fyrirbæra og eru þeir fyrir fólk sem vill sleppa við vera á fjórum fótum út í garði. Grendargarðar í Reykjavík, er nýtt tilraunaverkefni á vegum Garðyrkjufélag Íslands og Reykjavíkurborgar og þriðji og síðasti garðurinn sem verður skoðaður er eldhúsgarðurinn sem Hildur Hákonardóttir og Guðrún Tryggvadóttir hafa verið þróa á vefsíðunni www.nattura.is. Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur gefur nokkur góð ráð við sniglafaraldri og þátturinn endar svo í Hveragerði þar sem sýninginn Blóm í bæ.

Frumflutt

23. júní 2024

Aðgengilegt til

24. júní 2025
Í boði náttúrunnar

Í boði náttúrunnar

Þátturinn er í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, hugmynd um hvernig þau eiga koma slíku verki í framkvæmd. En til afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga. (Áður á dagskrá 2009)

Þættir

,