12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 28. ágúst 2024
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Framtíð náms í jökla- og fjallaleiðsögn er í hættu vegna fjárskorts segir jöklaleiðsögumaður sem kom að slysinu í Breiðamerkurjökli. Breyta á náminu vegna fjárhagsörðugleika Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.

Ísraelsher gerir sem stendur árásir á fjórar borgir á Vesturbakkanum og hefur drepið níu manns. Þetta er í fyrsta sinn í tvo áratugi sem herinn gerir samtímis árásir á nokkrar borgir þar í einu.

Þriðjungi starfsfólks Controlant hefur verið sagt upp störfum. Fyrirtækið gegndi lykilhlutverki í dreifingu bóluefna í COVID-19 faraldrinum.

Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar biður Rússa og Úkraínumenn að beina ekki vopnum sínum að kjarnorkuverinu í Kúrsk.

Samgöngur og störf án staðsetningar eru meðal þess sem rætt er á fundi ríkisstjórnarinnar og sveitarstjórnarfólks á Norðvesturlandi sem haldinn er á Sauðárkróki.

Forstjóri MAST og tveir starfsmenn stofnunarinnar hafa kært til lögreglu aðdróttanir um mútuþægni starfsfólks stofnunarinnar.

Bændur í Vatnsdal hafa fengið fyrirspurnir um sölu jarða sinna undir ræktun kolefnisskóga. Einn þeirra segir koma á óvart að slík ræktun sé í kortunum þar sem fyrir sé öflug matvælaframleiðsla.

Róbert Ísak Jónsson keppir fyrstur Íslendinganna á Ólympíumóti fatlaðra í París sem sett verður í kvöld. Markmið hans er að komast í úrslit og skemmta sér.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,