Tónlistin í þættinum:
Hvíld, lag eftir Huga Guðmundsson við ljóð eftir Snorra Hjartarson. Samið fyrir kammerkórinn Hljómeyki, til minningar um Halldór Vilhelmsson söngvara og félaga í kórnum. Þorvaldur Örn Davíðsson útsetti fyrir stúlknakór. Graduale Nobili syngur undir stjórn Þorvalds Arnar Davíðssonar. Útgefið á plötunni Vökuró árið 2022.
Masques op. 34 eftir Karol Szymanowski.
Þættir verksins eru:
Nr. 1 Shéhérazade : Lento assai. Languido
Nr. 2. Tantris le Bouff on : Vivace assai
No. 3. Sérénade de Don Juan : Vivace
Flytjandi: Krystian Zimerman, píanó
Upptökur fóru fram Tónleikasal Tívolí í Kaupmannahöfn, í maí 1994.
Quartetto Primo í F-dúr, op. 64, no.1, G. 248 eftir Luigi Boccherini. Skálholtskvartettinn leikur, en hann er svo skipaður: Jaap Schröder, 1. fiðla ; Rut Ingólfsdóttir, 2. fiðla ; Svava Bernharðsdóttir, víóla ; Sigurður Halldórsson, selló
Þættirnir verksins eru:
I. Allegro Molto
II. Adagio
III. Allegro
Hljóðritað í Skálholti 8. og 9. ágúst 2005 í samvinnu við Sumartónleika í Skálholti.
Útgefið á plötunni Luigi Boccherini - Jaap Schröder í Skálholti - 100 ára minning árið 2025.
Vögguljóð eftir Sigurð Þórðarson, ljóðið orti Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson. Hljóðritun gerð á vegum Ríkisútvarpsins í hljóðveri 1, 14. febrúar 1979. Útvarpað 7. október 1984. Flytjendur: Ragnheiður Guðmundsdóttir, messósópran og Ólafur Vignir Albertsson, píanó.