Tónlistin í þættinum:
Kór Langholtskirkju syngur Krummavísu, íslenskt þjóðlag og þjóðvísu í útsetningu eftir Jón Ásgeirsson. Jón Stefánsson stjórnar.
Snorri Sigfús Birgisson leikur á píanó, eigið verk, Portrett nr. 4 (1997–1998).
Nemendur úr Konunglega tónlistarháskólanum í Lundúnum (Royal Academy of Music) og Juilliard háskólannum í New York (Julliard School Ensemble) leika undir stjórn Barböru Hannigan, 2. þátt, Passacagliu úr Septet, K080 eftir Ígor Stravínskíj.
Sinfóníuhljómsveit breska útvarpsins leikur verkið Figures, doubles, prismes eftir Pierre Boulez. Tónskáldið stýrir flutningi.
Skoska kammersveitin leikur þriðja þátt, Un poco allegretto e grazioso úr Sinfóníu nr. 1 eftir Johannes Brahms. Charles Mackerras stjórnar.
Emerson strengjakvartettinn leikur 1. þátt, Mäßig úr Strengjakvartetti nr. 2 í fís-moll eftir Arnold Schoenberg.
Sönghópurinn Voces 8 syngur, My mind is still eftir Nainitu Desai í útsetningu eftir Geoff Lawson. Með sönghópnum leika Thomas Gould á fiðlu, Elsa Bradley á víbrafón og Leif Kaner-Lidström á píanó.
Erla Dóra Vogler mezzósópran syngur, Eva Þyrí Hilmarsdóttir leikur á píanó, Krummavísu, þjóðlag og þjóðkvæði í útsetningu eftir Jórunni Viðar. Hljóðritun frá 2018.