Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist

Tónlistin í þættinum:

Allerseelen op. 10 nr. 8 (1885) eftir Richard Strauss. Yoshikazu Mera kontratenór syngur, með leikur japanska Fílharmóníusveitin undir stjórn Shigeo Genda.

Anti-Formalist Rayok (1948) eftir Dmitíj Shostakovitsj í útsetningu eftir Andrei Pushkarev. Flytjendur eru Alexei Mochalov, bassi, slagverksleikarinn Andrei Pushkarev, slagverk og hljómsveitin Kremerata Baltica.

Heiti plötu: Shostakovich Discoveries : World Premiere Recordings and Rarities (Útg. 23. maí 2025)

Þrjú japönsk ljóð (Three Japanese lyrics), K016 eftir Ígor Stravínskíj.

Verkið skiptist í eftirfarandi þætti:

Akahito

Mazatsumi

Tsaraiuki

Flytjendur eru Alexandra Heath, sópran, Hljómsveit Royal Academy of Music og Julliard School Ensemble, stjórnandi er Barbara Hannigah.

Upptaka fór fram 19.-21. janúar 2024 í Susie Sainsbury Theatre, Royal Academy of Music, London, UK. Útgefið árið 2024 á plötunni Stravinsky: Chamber Works.

Sunrise (1926) eftir Charles Ives. Henry Herford barítón syngur með kammersveitinni Ensemble Modern. Stjórnandi er Ingo Metzmacher. Útgefið árið 1992 á plötunni A Portrait of Charles Ives.

Intermezzo í cís-moll op. 117 nr. 3 eftir Johannes Brahms. Yuja Wang leikur á píanó. Upptaka fór fram 22. apríl árið 2022 á tónleikum í Konzerthaus í Vínarborg,

Hljóðritunin var gefið út á plötunni The Vienna recital, 3. maí 2024.

Kvartett II (1989) eftir Hauk Tómasson. Caput ensemble leikur. Útgefið á plötunni Portrait 1994.

Cockoo dúettinn eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þórarinn Stefánsson leikur á píanó. Hljóðritað í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ, útgefið árið 2025 á plötunni Einleiksverk fyrir píanó.

Birt

27. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þættir

,