Tónlistin í þættinum:
Lise Davidsen syngur Allmächt’ge Jungfrau! Úr fyrsta atriði 3. þáttar óperunnar Tannhüser eftir Richard Wagner. Með leikur hljómsveitin Fílharmónía undir stjórn Esa-Pekka Salonen.
Academy of St. Martin in the Fields leikur undir stjórn Neville Marriner, Andante úr Trompetkonserti í Es dúr eftir Franz Josep Haydn. Alan Stringer leikur einleik á trompet.
Sinfóníuhljómsveitn í Vín leikur undir stjórn Manfred Honeck, þriðja þátt, Rondo. Allegro úr Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit í D-dúr op. 61 eftir Ludwig van Beethoven. Maria Dueñas leikur einleik á fiðlu.
Sinfóníuhljómsveitin í Melbourne leikur Nostalgíu fyrir einleiksfiðlu og strengjasveit (1987) eftir Toru Takemitsu. Einleikari á fiðlu er Michael Dauth. Stjórnandi er Hiroyuki Iwaki.
Fílharmóníusveitin í New York leikur Lýríska svítu í þremur þáttum útsetta fyrir strengjasveit (1928) eftir Alban Berg. Stjórnandi er Pierre Boulez.
Verkið er í 3þremur þáttum:
1. Andante amoroso
2. Allegro misterioso - Trio estatico
3. Adagio appassionato
Una Sveinbjarnardóttir, fiðla og Tinna Þorsteinsdóttir, píanó leika Vetur (Winter) eftir Karólínu Eiríksdóttur.