Gulla Bjarnadóttir
Gulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar…
Fjölmiðlakonan Nadine Guðrún Yaghi er hálf íslensk og hálf líbönsk. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og móðir hennar þorði ekki að senda hana og systur hennar einar til pabba þeirra í frí vegna aðvarana annarra um að kannski kæmu þær ekki aftur til baka. Hún heldur sambandi við föður sinn og vann meðal annars á sumrin í menntaskóla á hótelkeðjum í Miðausturlöndum sem faðir hennar var hótelstjóri hjá. Nadine ræðir æskuna, fjölmiðlabakteríuna, Eftirmál og hjónabandið sem var ekki jafn löglegt og hún stóð í trú um.

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.