Ris og fall flugeldahagkerfa

Þegar leiknum er að ljúka tekur afneitunin við.

Í þættinum eru endalok íslenska flugeldahagkerfisins rifjuð upp. Hvað sögðu útrásarmennirnir fyrir og eftir hrun? Áhugaverð viðtöl rifjuð upp og þess freistað útskýra endalok íslenska flugeldahagkerfisins voru óumflýjanleg. Meðal þeirra sem koma fram eru Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur, Jón Fjörnir Thoroddsen hagfræðingur og Páll Ásgeir Davíðsson lögfræðingur.

Frumflutt

12. mars 2011

Aðgengilegt til

15. júní 2025
Ris og fall flugeldahagkerfa

Ris og fall flugeldahagkerfa

Fjallað er um sögu fjármálamarkaða og mannlegt eðli í heimi peninga, freistingar og græðgi. Íslenska efnahagshrunið er borið saman við þekkt söguleg flugeldahagkerfi s.s. ENRON. Hagfræðingar, geðlæknar, siðfræðingar, sagnfræðingar og þátttakendur í íslenska efnahagsunrinu tjá sig um þá atburði sem leiddu til hrunsins mikla í október 2008. Í þáttunum er ennfremur rifjaðar upp fréttir, viðtöl og samsæriskenningar í bland við tónlist og fróðleik um manninn, fjármál og heimssöguna.

Höfundur þáttanna er Þórður Víkingur Friðgeirsson verkfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík.

(Áður á dagskrá 2010)

Þættir

,