
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hildur Sverrisdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fjallaði nýlega um skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og segir hún fulla ástæðu til að vera logandi hræddur við skattahækkanir þegar lítill gaumur er gefinn þeim áhrifum og afleiðingum sem þær geta haft í för með sér. Við fáum Hildi til okkar í spjall um skatta, ríkisstjórnina og stemninguna á Alþingi.
Guðný Ljósbrá, sælkeri og matgæðingur Morgunútvarpsins, mætir með gómsæta umfjöllun um mat.
OCD vitundarvikan er alþjóðlegur viðburður og er haldinn árlega í október. Hugmyndin er að auka þekkingu á áráttu- og þráhyggjuröskun, eyða mýtum og fræða almenning um þennan kvilla sem hjráir yfir 200 milljónir manna á heimsvísu. Tómas Páll Þorvaldsson sálfræðingur kemur til okkar og fræðir hlustendur.
Tillögu Samfylkingarinnar í borginni um eflingu íslenskukennslu barna með annað móðurmál og var lögð fram á síðasta borgarstjórnarfundi og vísað áfram í vinnu skóla og frístundasviðs sem er að móta aðgerðir í sóknaráætlun borgarinnar í menntamálum. Skúli Helgason borgarfulltrúi kemur og segir okkur af hverju þessi tillaga er mikilvæg.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.