
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram frumvarp um breytingu á fæðingar- og foreldraorlofi sem á að koma í veg fyrir að greiðslur til foreldra sem eignast börn með skömmu millibili séu ekki lækkaðar vegna þess. Bryndís verður á línunni en hún vill ekki að fólki sé refsað fyrir að hafa stutt á milli barna.
Guðmundur Jóhannsson mætir sprækur sem lækur með nýjasta úr heimi tækninnar.
Í síðustu viku fengum við fréttir af því að bílar í Vesturbæ Reykjavíkur og víðar voru rispaðir í skjóli nætur. Einhverjir vildu skrifa þetta á myndbönd sem fara eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum en hvað segir lögreglan? Er þetta að verða einhvers konar faraldur? Guðmundur Pétur Guðmundsson lögreglufulltrúi svarar því.
Eitt stærsta og vinsælasta hafnaboltalið Japans hefur fjárfest í íslensku bókunarsíðunni TripToJapan.com. Liðið er gríðarlega vinsælt og líkja sumir þessu við að fótboltaliðið Barcelona myndi eignast hlut í bókunarsíðu sem sérhæfði sig í ferðum til spánar. TripToJapan hefur vaxið hratt á skömmum tíma og forstjórinn Bolli Thoroddsen kemur og segir okkur frá þessum ævintýralega uppgangi.
Og við höldum okkur í Asíu því kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson sagði frá því á döguunum að búið sé að endurgera kvikmyndina Hrúta í Suður-Kóreu. Hrútar sló í gegn þegar hún kom út árið 2015 og hlaut Un Certain Regard-verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes sama ár. Grímur er nokkuð ánægður með endurgerðina þó kindurnar séu orðnir að kálfum og hann ætlar að koma og segja okkur hvernig þetta kom til.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.