• 00:13:2890 ára afmæli almannatrygginga
  • 00:28:35Tæknihornið
  • 00:49:33Misskilin góðmennska foreldra
  • 01:14:43Fimm skotheld sparnaðarráð

Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Sparðarráð,misskilin góðmennska foreldra,tæknihornið og almannatryggingar eru 90 ára

Á þessu ári eru 90 ár liðin frá því að lög um alþýðutryggingar tóku gildi og Tryggingastofnun ríkisins hóf starfsemi. Með lögunum var lagður grunnur að almannatryggingakerfinu hér á landi sem hefur þróast og breyst töluvert með árunum. Í dag eru þrjár stofnanir sem byggja á þessum grunni, þ.e. Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun. Hver stofnun þjónustar gríðarlegan fjölda landsmanna. Huld Magnúsdóttur, forstjóri Tryggingastofnunar, kom til okkar.

Guðmundur Jóhannsson, tæknisérfræðingur Morgunútvarpsins, fékk sér ólgandi kaffibolla og fór yfir það helsta úr heimi tækninnar.

Við höldum áfram að ræða um blessuð börnin í Morgunútvarpinu en í síðustu viku ræddum við bæði um foreldra sem gera meira vont en gott t.d. með því að leyfa þeim ekki að upplifa vonbrigði í íþróttum og niðurstöður nýrrar PISA-könnunar voru líka á allra vörum. Skólakerfið er eitt en foreldrar hljóta líka að þurfa að líta í eigin barm. Erum við að skapa rétta umhverfið fyrir börnin. Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra á Laufásborg og Reykvíkingur ársins, býr yfir dýrmætri reynslu og hún kom til okkar.

Hrefna Björk Sverrisdóttir og Arnar Þór Ólafsson hafa gert það gott í þáttunum Viltu finna milljón. Þau eru að fara af stað með námskeið í fjármálum og komu til okkar með fimm skotheld sparnaðarráð inn í haustið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,