Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Kosið verður til breska þingsins í næstu viku. Enn eru niðurstöður kanna Sunak forsætisráðherra í óvil og fari sem horfir er ekki nóg með að ósigur Íhaldsflokksins verði sögulegur heldur missir forsætisráðherrann þingsætið sitt. Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur spáði í spilin með okkur.
Frá Bretlandi fórum við til Þýskalands. Arthur Björgvin Bollason spjallaði við okkur frá höfuðborginni Berlín. Hann sagði frá félagsskap eða stofnun sem stofnað var til fyrir hundrað árum til mann- og samfélagsrannsókna. EM í fótbolta kom líka við sögu og þá ekki síst efnahagsleg áhrif keppnishaldsins - óheyrilegur fjöldi evra rennur úr einu vasa í annan í tengslum við svona mót.
Undir lok þáttar fjölluðum við svo um nýja sameinaða sveitarfélagið við austanverðan Húnaflóa. Sameining Húnabyggðar og Skagabyggðar var samþykkt í atkvæðagreiðslu á laugardag. Við ræddum við Erlu Jónsdóttur oddvita Skagabyggðar um sameininguna og lífið og tilveruna á Skaga.
Tónlist:
Hollies, The - He ain't heavy, he's my brother.
Denny, Sandy - Who knows where the time goes.
Slagarasveitin - Þannig kviknar ástin.
Slagarasveitin - Það ert þú.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Fugl dagsins verður kynntur til leiks hér rétt strax og við bryddum uppá nýjung því við ætlum að gefa vísbendingar og hljóð eins og venjulega.
Veganestið er á sínum stað með Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Útbúnaður af ýmsum toga fyrir byrjendur er þema pistilsins í dag en sá útbúnaður þarf alls ekki að vera dýr segir Páll: aðalatriðið eru góðir skór. Ullin stendur sannarlega fyrir sínu, lopapeysa, ullarhúfa, ullarvettlingar og ullarsokkar. Gamlir strigaskór duga langt ef fólk er að ganga eftir stígum eða götum og það er mikilvægt að horfa undir skóinn þegar maður kaupir nýja skó til göngu, sólinn er aðalatriðið.
Krakkar elska hrylling – líklega meira en margir vilja viðurkenna - þetta veit Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, og blés því á dögunum til hryllilegrar ritsmiðju fyrir 9-12 ára krakka á borgarbókasafninu í Úlfarsárdal - Sumarmál kíktu þar við.
Tónlist:
Ríó tríó - Af stað.
Fjallabræður, Hljómsveit, Sveinbjörn Hafsteinsson - Faðmlag.
Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska.
Fitzgerald, Ella, Buddy Bregman Orchestra - So in love.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Julian Assange, forsprakki og stofnandi Wikileaks, er frjáls maður eftir að hafa setið í fangelsi í fimm ár. Hann mun játa brot á njósnalöggjöf Bandaríkjanna.
Fíkniefni, lyf, sterar og skotvopn, eru meðal þess sem lögregla lagði hald á í umfangsmiklu fíkniefnamáli. Átján hafa réttarstöðu sakbornings og fimm eru í gæsluvarðhaldi.
Umdeild gjaldtaka á bílastæðum við innanlandsflugvelli er hafin. Á Egilsstöðum lét ósáttur íbúi skoðun sína í ljós og hengdi bol yfir myndavél.
Mikill samdráttur var í bílasölu og í sjávarútvegi í mars og apríl samanborið við sömu mánuði í fyrra og blikur eru á lofti í ferðaþjónustu.
Samningur um Uppbyggingarsjóð EES ríkjanna var samþykktur í ráðherraráði Evrópusambandsins í dag, rúmum þremur árum eftir að viðræður hófust. Samhliða voru samþykkt ákvæði um aukinn aðgang fyrir íslenskar og norskar sjávarafurðir inn á innri markaðinn.
Eldur kviknaði í mannlausri íbúð í fjölbýli á Akranesi í morgun. Tveimur var bjargað af svölum hússins.
Til stendur að hefja snjómokstur á veginum inn að Öskju á morgun. Óvenju mikill snjór er á þessari leið í ár og gæti tekið allt að þrjá daga að gera fært alla leið að Öskju.
Mánuður er þangað til Ólympíuleikarnir í París verða settir. Það liggur enn ekki fyrir hversu margir íslenskir íþróttamenn taka þátt.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Margt ungt fólk leitar af landsbyggðinni inn í höfuðborgina til að mennta sig og komast í störf sem því þykir áhugaverð. Í þessum þætti er rætt við ungt fólk sem velur að flytja úr höfuðborginni og út á land. Þau kunna að meta lífsgæðin í smábæum þar sem er minna stress og minni tími fer í leiðinlegar bílferðir á milli daglegra viðkomustaða.
Hólmfríður Rut Einarsdóttir flutti með sína fjölskyldu á Egilsstaði en Auðunn Haraldsson stefnir á flutninga með fjölskyldu sinni til Vestmannaeyja. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Anton Kaldal Ágústsson á rætur í myndlist en féll snemma fyrir raftónlist. Með tímanum fór hann að flétta hljóðfæraleik saman við raftakta og með tímanum varð til fjölskipuð hljómsveit sem hann kallar Tonik Ensemble.
Lagalisti:
Anton Kaldal
Technotæfa - Super Tonic
Form Follows - Monospace
Bogus Journey - Bogus Journey
Until We Meet Again - Snapshot Two
Snapshots - Nangilima
Inside (Icelandic Landscape Remix) - Inside
Óútgefið - Music is Mass
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér er tekið saman efni og lesið úr Í ljósi minninganna, bernskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965) frá Miklabæ. Hún lýsir á fallegan og næman en um leið hispurslausan hátt uppvexti í Skagafirði, þar sem lífið var svo rólegt og fábreytt að koma vegavinnumanna var sannkallað ævintýri og molasykur var ígildi hins stóra heims.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Við lítum inn í sýningarrýmið Á milli, við ingólfsstræti, en þar hanga upp olíumálverk eftir Sturlu Sigurðarson. Sýningin nefnist Skref fyrir skref og samanstendur af 6 málverkum í abstrakt expressjónískum stíl sem hverfast öll minningar sem eru duldar í líkamanum. Við ræðum við Sturlu í þætti dagsins.
Við rifjum upp tónlistarpistil Jelenu Ciric frá því í fyrra um tónlistarmenn af frumbyggjaættum sem starfa í Kanada. Tónlistarmenn sem verða fyrir áhrifum frá ólíkum tónlistarstefnum, allt frá kántrý til Dubstep sem þeir blanda svo við hljóðheim og málefni frumbyggjaþjóða til að skapa eitthvað alveg nýtt.
Einnig heilsum við íslensku sumri með hjálp hljóðritasafns Ríkisútvarpsins. Við týnum við fram nokkur sumarbrot og setjum saman að hætti hússins, þetta eru væntingar og stemningar, hugarleikfimi fyrri tíma um þann dásemdartíma sem sumarið er og á að vera og þær vonir sem ferðalög innibera.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Fyrr í júní hóf göngu sína í danska ríkissjónvarpinu, DR, heimildaþáttaröð sem nefnist Sexisme i musikbranchen, sexismi í tónlistarbransanum. Þættirnir gera grein fyrir þeim mikla kynjahalla sem ríkt hefur í dönsku tónlistarlífi um árabil, með vísan til rannsóknar á stöðu kvenna í geiranum sem birt var 2022. En auk þess að greina frá sláandi tölfræði, er í þáttunum rætt við ýmsa sérfræðinga og fjöldan allan af dönskum tónlistarkonum sem segja frá reynslu sinni úr bransanum. Við hringjum til Kaupmannahafnar til að reyna að átta okkur betur á umtalinu sem þættirnir hafa vakið upp á síðkastið.
Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður og pistlahöfundur Lestarinnar, veltir fyrir sér yfirstandandi kántrí-tískubylgju.
Jonathan Zenti er ítalskur og starfar við hlaðvarpsþáttagerð. Lóa hitti hann á Audio Storytelling Festival í Róm í vor og ræddi við hann um þættina Meat, frá árinu 2018. Þættirnir fjalla um líkama, hver á þá, sambönd okkar við okkar eigin líkama og líkama annarra.
Lagalisti:
Astrid Sonne - Do you wanna
Mija Milovic - CPH
ML Buch - Teen (af Fleshy EP 2017)
Post Malone, Blake Shelton - Pour Me A Drink
Shaboozey – A Bar Song
Eagles – Take It Easy
Bob Dylan, Johnny Cash – Girl from the North Country
Lil Nas X – Old Town Road
Beyoncé - Texas Hold’em
Kvöldfréttir útvarps
Maður sem bjó í þjónustuíbúð á hjúkrunarheimili í Grindavík borgar þrefalt meira fyrir sambærilega íbúð í Reykjavík. Ganga þarf á sparifé til að láta dæmið ganga upp.
Niðurstaðan í máli Julians Assange er táknrænn sigur að mati prófessors í fjölmiðlafræði, en segir lítið um stöðu fjölmiðlafólks.
Dómsmálaráðherra vill sporna við ofbeldi ungmenna og forðast gengjastríð, eins og algeng eru á Norðurlöndum. Stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun í dag.
Þrír starfsmenn rafhlöðuverksmiðju í Svíþjóð hafa, frá áramótum, látist á grunsamlegan hátt. Lögregla rannsakar hvort vinnuaðstæður hafi valdið dauða þeirra.
Nýja hraunið í Svartsengi verður myndmælt með þrívíddardrónum áður en ákvörðun verður tekin um það hvort, og þá hvernig, varnargarðurinn verði hækkaður.
Almenningur hefur flykkst út á götur í Kenía til að mótmæla umdeildum skattahækkunum. Skemmdir voru unnar á ráðhúsi höfuðborgarinnar Naíróbí og kveikt í þinghúsinu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Julian Assange var leystur úr Belmarsh öryggisfangelsinu í Lundúnum í morgun, þar sem honum hafði verið haldið meira og minna í einangrun í rúm fimm ár án dóms og eiginlegrar málsmeðferðar, með framsal til Bandaríkjanna yfirvofandi. Sigríður Dögg Auðundsdóttir formaður blaðamannafélagsins fagnar frelsun Assange, en segir málalyktir þó ekki geta talist sigur fjölmiðla- og tjáningarfrelsis.
Spegillinn óskaði eftir gögnum um ákvörðun matvælaráðherra að leyfa hvalveiðar á þessu ári - þau varpa ljósi á mikla óánægju forstjóra Hvals og efasemdir innan matvælaráðuneytisins um útreikninga Hafrannsóknastofnunar.
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Í þessum framhaldsþætti af Harry Potter fær Fríða bræðurna þrjá í spurningakeppni byggða á bókunum og myndunum um Harry Potter.
Gríðarlega spennandi keppni þar sem bræður berjast um að fá að velja óskalag í lok þáttar!
Óhætt er að segja að það er margt sem kemur á óvart í þessari keppni sem er sprenghlægileg á köflum.
Keppendur:
Ævar Þór Benediktsson
Guðni Líndal Benediktsson
Sigurjón Líndal Benediktsson
Spurningahöfundur: Fríða María
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Sumartónlistarhátíð evrópskra útvarpsstöðva beint heim í stofu til þín í sumar.
Hljóðritun frá tónleikum hljómsveitarinnar Les Siècles á Schwetzingen tónlistarhátíðinni í Þýskalandi í maí sl.
Á efnisskrá eru verk eftir György Ligeti og Wolfgang Amadeus Mozart.
Einleikarar: Isabelle Faust á fiðlu og Alexander Melnikov á píanó.
Stjórnandi: François-Xavier Roth.
Umsjón: Sigrún Harðardóttir.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Fugl dagsins verður kynntur til leiks hér rétt strax og við bryddum uppá nýjung því við ætlum að gefa vísbendingar og hljóð eins og venjulega.
Veganestið er á sínum stað með Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Útbúnaður af ýmsum toga fyrir byrjendur er þema pistilsins í dag en sá útbúnaður þarf alls ekki að vera dýr segir Páll: aðalatriðið eru góðir skór. Ullin stendur sannarlega fyrir sínu, lopapeysa, ullarhúfa, ullarvettlingar og ullarsokkar. Gamlir strigaskór duga langt ef fólk er að ganga eftir stígum eða götum og það er mikilvægt að horfa undir skóinn þegar maður kaupir nýja skó til göngu, sólinn er aðalatriðið.
Krakkar elska hrylling – líklega meira en margir vilja viðurkenna - þetta veit Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, og blés því á dögunum til hryllilegrar ritsmiðju fyrir 9-12 ára krakka á borgarbókasafninu í Úlfarsárdal - Sumarmál kíktu þar við.
Tónlist:
Ríó tríó - Af stað.
Fjallabræður, Hljómsveit, Sveinbjörn Hafsteinsson - Faðmlag.
Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska.
Fitzgerald, Ella, Buddy Bregman Orchestra - So in love.
eftir Rögnu Sigurðardóttur. Höfundur les.
Skáldsaga sem gefin var út 2009 og vakti þá verulega athygli. Efni hennar er í stuttu máli á þessa leið: Hanna snýr heim frá Amsterdam til að taka við starfi hjá listasafni borgarinnar. Það er góðæri á Íslandi og auðmenn njóta þess að gefa safninu dýrar gjafir. Ein slík er landslagsmálverk með birkitrjám eftir þekkta listakonu frá öldinni sem leið. Gallinn er sá að forvörður á safninu, hinn dularfulli Steinn, telur að myndin sé fölsuð. Þegar slíku er haldið fram vekur það auðvitað mikil viðbrögð meðal yfirstjórmar listasafnsins.
Ragna Sigurðardóttir er menntuð í myndlist og starfaði sem myndlistarmaður og gagnrýnandi um skeið, en hefur síðan snúið sér að sagnagerð. Efnivið í ritverk sín sækir hún tíðum í myndlistarheiminn.
(Áður á dagksrá 2013)
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Fyrr í júní hóf göngu sína í danska ríkissjónvarpinu, DR, heimildaþáttaröð sem nefnist Sexisme i musikbranchen, sexismi í tónlistarbransanum. Þættirnir gera grein fyrir þeim mikla kynjahalla sem ríkt hefur í dönsku tónlistarlífi um árabil, með vísan til rannsóknar á stöðu kvenna í geiranum sem birt var 2022. En auk þess að greina frá sláandi tölfræði, er í þáttunum rætt við ýmsa sérfræðinga og fjöldan allan af dönskum tónlistarkonum sem segja frá reynslu sinni úr bransanum. Við hringjum til Kaupmannahafnar til að reyna að átta okkur betur á umtalinu sem þættirnir hafa vakið upp á síðkastið.
Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður og pistlahöfundur Lestarinnar, veltir fyrir sér yfirstandandi kántrí-tískubylgju.
Jonathan Zenti er ítalskur og starfar við hlaðvarpsþáttagerð. Lóa hitti hann á Audio Storytelling Festival í Róm í vor og ræddi við hann um þættina Meat, frá árinu 2018. Þættirnir fjalla um líkama, hver á þá, sambönd okkar við okkar eigin líkama og líkama annarra.
Lagalisti:
Astrid Sonne - Do you wanna
Mija Milovic - CPH
ML Buch - Teen (af Fleshy EP 2017)
Post Malone, Blake Shelton - Pour Me A Drink
Shaboozey – A Bar Song
Eagles – Take It Easy
Bob Dylan, Johnny Cash – Girl from the North Country
Lil Nas X – Old Town Road
Beyoncé - Texas Hold’em
![Næturtónar](/spilari/DarkGray_image.png)
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Alþingi samþykkti á laugardaginn, á lokastarfsdeginum fyrir sumarfrí, breytingu á lögum um listamannalaun svo launasjóðum sem starfslaun eru veitt úr fjölgar og árlegir úthlutunarmánuðir verða fleiri. Starfslaunamánuðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.490 á fjórum árum. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fór yfir helstu breytingar með okkur sem og ræddi við okkur um nýja ferðamálastefnu.
Við ræddum í gær frétt af Vísi þar sagt er frá tölvupósti frá tryggingafélaginu Sjóvá til viðskipavina sinna sem eiga Teslur, þar sem athygli er vakin á því að Teslum er ekið oftar á mannvirki en öðrum bílum. Hlustandi hafði samband í kjölfarið og benti á að svo miklar breytingar hafi orðið á nýjum bílum að ungt fólk sem er að fá bílprófið kann ekki á eldri týpur af bílum. Okkur lék forvitni á að vita hvort ökukennsla í landinu hafi fylgt þessari þróun og nýjungum sem er að finna í nýjustu bílunum. Til að ræða þetta kom til okkar Þuríður B. Ægisdóttir formaður Ökukennarafélag Íslands.
Sævar Helgi Bragason var með Vísindahornið sitt beint úr hljóðveri RÚV á Akureyri þennan morguninn. Hann ræddi við okkur um sumarsólstöður, almyrkva og heimasíðuna solmyrkvi2026.is og vel heppnaða ferð kínverja með ómanna geimfar sem lenti á fjærhlið tunglsins.
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir var valin nýútskrifuð í hlutverk Auðar í söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni sem Leikfélag Akureyrar setur upp í haust. Við ræddum aðeins við þessa ungu leikkonu og fengum hana til þess að segja okkur aðeins af sér og leikllistarnáminu.
Lagalisti:
GDRN - Háspenna
Paul Simon - You Can Call Me Al
Jónfrí og Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel
Jóhanna Guðrún - Töfrar
The Stone Roses - Waterfall
Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varst'ekki kyrr?
Bogomil Font & Milljónamæringarnir - Marsbúa chacha
Dominic Fike - 3 Nights
The Turtles - Happy together
Daft Punk - Lose Yourself To Dance
Leifur Hauksson og Edda Heiðrún Bachmann - Snögglega Baldur
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það var mikið brallað í Hjartagosum dagsins.
Friðrik Sturluson, bassaleikari Sálarinnar hans Jóns míns var á línunni og ræddi bassalínur.
Jón Axel Ólafsson, fjölmiðlamaður sagði okkur frá bókinni sem hann og vinur hans, Gulli Helgason gáfu út á sínum tíma. Jón á eintak Nr. 180.000 af svörtu bókinni.
Hjálmar Örn Jóhannsson, fyrrverandi varafyrirliði Gróttu mætti í glimrandi EM horn og hlaðvarp á sviði.
VIlli Neto og Fjölnir hlaðvinur hans sögðu frá sínu hlaðvarpi, "Já OK" sem fer á svið í Háskólabíói á föstudaginn.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-25
START - Seinna Meir.
COLDPLAY - feelslikeimfallinginlove.
KUSK - Sommar.
SÓLDÖGG - Hennar Leiðir.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar Er Draumurinn?.
Ross, Joel, Ross, Joel, Ross, Joel - Interlude (Bass solo).
Þursaflokkurinn - Sérfræðingar segja.
THE DOORS - Spanish Caravan.
Fatboy Slim - The Rockafeller Skank.
EARTH WIND & FIRE - September.
SCOPE - Was That All It Was.
Bee Gees - Night's On Broadway.
Lón - Hours.
HIPSUMHAPS - Hjarta.
Friðrik Dór Jónsson, Herra Hnetusmjör, Steindi Jr. - Til í allt, Pt. 3.
SUGABABES - Overload.
Lipa, Dua - Illusion.
VILLI NETO - Held í mér andanum (Áramótaskaupið 2020).
SIGRID - Don't kill My Vibe.
Fjörefni - Dansað á dekki.
Crazy Town - Butterfly (Album vers.).
Hrannar Máni Ólafsson - Trúður.
Lynn, Cheryl - Got To Be Real.
SNOW PATROL - Chasing Cars.
Emilíana Torrini - Miss flower.
KYLIE MINOGUE - Slow.
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
Edda Heiðrún Backman - Afmælisvísur.
BOB MARLEY AND THE WAILERS - Jamming.
NOISETTES - Never Forget You.
Empire of the sun - Music On The Radio.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Julian Assange, forsprakki og stofnandi Wikileaks, er frjáls maður eftir að hafa setið í fangelsi í fimm ár. Hann mun játa brot á njósnalöggjöf Bandaríkjanna.
Fíkniefni, lyf, sterar og skotvopn, eru meðal þess sem lögregla lagði hald á í umfangsmiklu fíkniefnamáli. Átján hafa réttarstöðu sakbornings og fimm eru í gæsluvarðhaldi.
Umdeild gjaldtaka á bílastæðum við innanlandsflugvelli er hafin. Á Egilsstöðum lét ósáttur íbúi skoðun sína í ljós og hengdi bol yfir myndavél.
Mikill samdráttur var í bílasölu og í sjávarútvegi í mars og apríl samanborið við sömu mánuði í fyrra og blikur eru á lofti í ferðaþjónustu.
Samningur um Uppbyggingarsjóð EES ríkjanna var samþykktur í ráðherraráði Evrópusambandsins í dag, rúmum þremur árum eftir að viðræður hófust. Samhliða voru samþykkt ákvæði um aukinn aðgang fyrir íslenskar og norskar sjávarafurðir inn á innri markaðinn.
Eldur kviknaði í mannlausri íbúð í fjölbýli á Akranesi í morgun. Tveimur var bjargað af svölum hússins.
Til stendur að hefja snjómokstur á veginum inn að Öskju á morgun. Óvenju mikill snjór er á þessari leið í ár og gæti tekið allt að þrjá daga að gera fært alla leið að Öskju.
Mánuður er þangað til Ólympíuleikarnir í París verða settir. Það liggur enn ekki fyrir hversu margir íslenskir íþróttamenn taka þátt.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Þrusufínt Poppland þennan þriðjudaginn. Lovísa Rut sá um skipulagið, plata vikunnar á sínum stað, Miss Flower með Emilíönu Torrini, umfjöllun um Charli XCX, og viðtal við bræðurna í Pince of the City.
KALEO - All the pretty girls.
Thee Sacred Souls - Can I Call You Rose?.
Ayers, Roy - Everybody loves the sunshine.
Drugdealer - Pictures of You.
Eilish, Billie - Birds of a Feather.
Travi$ Scott - Raze The Bar.
BUFFALO SPRINGFIELD - For What It's Worth.
CARPENTERS - (They Long To Be) Close To You.
Emilíana Torrini - Miss flower.
K.óla - Sex on a cloud.
Jónfrí, Ólafur Bjarki - Gott og vel.
Purple Disco Machine - Honey Boy (FT. NILE RODGERS & SHENSEEA).
JÚNÍUS MEYVANT - Neon Experience.
HAIM - Summer Girl.
PELICAN - Jenny darling.
Magni Ásgeirsson, Hreimur, Gunnar Ólason - Árið 2001.
Marcagi, Michael - Scared To Start.
DAVID BOWIE - Space Oddity.
Bubbi Morthens - Dansaðu.
INXS - Suicide Blonde.
Charli XCX, Iggy Azalea - Fancy (clean).
Ásdís - Flashback.
Charli XCX - Von dutch [Clean].
Charli XCX - 360 (Explicit).
Prince of the City, Prince of the City - How You Feel Like.
Pale Moon - Love Me.
JOHN MAYER - Waiting On The World To Change.
Jóhanna Guðrún - Töfrar.
GDRN - Næsta líf.
DAÐI & GAGNAMAGNIÐ - 10 Years (Ísland Eurovision 2021).
ARCADE FIRE - The Suburbs.
MINNIE RIPERTON - Les Fleurs.
EMILÍANA TORRINI - Black Lion Lane.
ZERO 7 - In the Waiting Line.
JEFF WHO - Congratulations.
MILEY CYRUS - Malibu.
KUSK - Sommar.
ULTRAFLEX - Say Goodbye.
EYÞÓR INGI - Hugarrórar.
STEPHEN SANCHEZ - Until I Found You.
Fjögur frumvörp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, urðu að lögum um helgina.
Frumvarp ráðherra vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu og breytingu á fæðingar- og foreldraorlofi og lögum um sorgarleyfi voru samþykkt. Einnig var samþykkt frumvarp um breytingu á lögum um réttindagæslu fatlaðs fólks og svo voru gerðar ýmsar breytingar á lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði. Við ætlum að heyra í Guðmundi Inga Guðbrandssyni félags og vinnumarkaðsráðherra hér á eftir.
Jakob Smári Magnússon, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum kemur til okkar og segir okkur frá Aðstoð eftir afplánun sem er nýtt verkefni á vegum Rauða krossins að norskri og danskri fyrirmynd og felur í sér að sjálfboðliðar Rauða krossins aðstoða fólk sem lokið hefur afplánun við hin ýmsu mál.
Soðkokkurinn Kristinn Guðmundsson kíkir í kaffisopa til okkar beint frá Brussel í Belgíu þar sem hann er búsettur. Hann lenti í Keflavík nú skömmu eftir hádegi og hann ætlar að koma við hér í Efstaleitinu áður en hann leggur af stað á Höfn í Hornafirði þar sem hann heldur hátíð fyrir hornfirsku kartöfluna um næstu helgi. Hvernig ætlar hann að gera það, meira um það hér á eftir.
Við ætlum að forvitnast um matarreikni sem verkfræðistofan Efla hefur þróað til að reikna út kolefnisspor máltíða. Sigurður Loftur Thorlacius umhverfisverkfræðingur hjá Eflu heldur utan um hugbúnaðinn sem hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarin ár og hann kemur í síðdegisútvarpið á eftir og við forvitnumst um hvernig þessir matrareiknir virkar.
Í dag birtist pistill á vísi eftir Benedikt S. Benediktsson lögfræðing SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu undir yfirskriftinni Áfengisumræðan ? En þar fjallar Benedikt um að undanfarið hafi átt sér stað endurteknar umræður um verslun með áfengi. En bendir hann á að umræðan verði að þroskast. Benedikt kemur til okkar á eftir.
Kvöldfréttir útvarps
Maður sem bjó í þjónustuíbúð á hjúkrunarheimili í Grindavík borgar þrefalt meira fyrir sambærilega íbúð í Reykjavík. Ganga þarf á sparifé til að láta dæmið ganga upp.
Niðurstaðan í máli Julians Assange er táknrænn sigur að mati prófessors í fjölmiðlafræði, en segir lítið um stöðu fjölmiðlafólks.
Dómsmálaráðherra vill sporna við ofbeldi ungmenna og forðast gengjastríð, eins og algeng eru á Norðurlöndum. Stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun í dag.
Þrír starfsmenn rafhlöðuverksmiðju í Svíþjóð hafa, frá áramótum, látist á grunsamlegan hátt. Lögregla rannsakar hvort vinnuaðstæður hafi valdið dauða þeirra.
Nýja hraunið í Svartsengi verður myndmælt með þrívíddardrónum áður en ákvörðun verður tekin um það hvort, og þá hvernig, varnargarðurinn verði hækkaður.
Almenningur hefur flykkst út á götur í Kenía til að mótmæla umdeildum skattahækkunum. Skemmdir voru unnar á ráðhúsi höfuðborgarinnar Naíróbí og kveikt í þinghúsinu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Julian Assange var leystur úr Belmarsh öryggisfangelsinu í Lundúnum í morgun, þar sem honum hafði verið haldið meira og minna í einangrun í rúm fimm ár án dóms og eiginlegrar málsmeðferðar, með framsal til Bandaríkjanna yfirvofandi. Sigríður Dögg Auðundsdóttir formaður blaðamannafélagsins fagnar frelsun Assange, en segir málalyktir þó ekki geta talist sigur fjölmiðla- og tjáningarfrelsis.
Spegillinn óskaði eftir gögnum um ákvörðun matvælaráðherra að leyfa hvalveiðar á þessu ári - þau varpa ljósi á mikla óánægju forstjóra Hvals og efasemdir innan matvælaráðuneytisins um útreikninga Hafrannsóknastofnunar.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Af nægu að taka af nýrri tónlist á Kvöldvaktinni og meðal þeirra sem fara á fóninn eru Billie Eilish, Cage the Elephant, Black Keys, Omar Apollo, Foster the People, Jamie xx ft Robyn, Pixies, Fontaines D.C., Caribou, Óviti og mörgum öðrum.
Lagalistinn
Emilíana Torrini - Black Lion Lane.
Lana Del Rey - West coast
Billie Eilish - Birds of a Feather.
Cage the Elephant - Rainbow.
The Black Keys - On The Game.
Hinds, Beck - Boom Boom Back.
Sugarcubes - Blue eyed pop.
Pixies - You're So Impatient.
Óviti - Trúður.
FRANKIE GOES TO HOLLYWOOD - Relax
Eminem - Houdini.
Foster the people - Lost In Space.
Omar Apollo - Less Of You.
Layo And Bushwacka! - Love Story.
Robyn, Jamie xx - Life
Dan Diamond, Luca Guerrieri, Fatboy Slim - Role Model.
Roosevelt - Automatic.
Michael Marcagi - Scared To Start.
Fontaines D.C. - Favourite.
Libertines, The - Can't stand me now.
Supersport! - Fingurkoss.
Green Day - Dilemma.
Spacestation - Í draumalandinu.
NEW ORDER - 60 Miles An Hour.
Sameheads - Barinn við barinn.
Glass Animals - A Tear in Space (Airlock).
Miike Snow - I Was A Sailor.
Jónfrí, Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel.
Kasabian - Coming Back To Me Good.
Swedish House Mafia, Niki and the Dove - Lioness.
GOLDFRAPP - Ooh La La.
Caribou - Broke My Heart.
Fred again.., Anderson .Paak, Chika - Places to be.
WISEGUYS - Ooh La La.
Templeman, Alfie, Rodgers, Nile - Just a Dance.
Ásdís - Flashback.
The Blessed Madonna - Count On My Love
Gray, Michael - The weekend (radio edit).
Barry Can't Swim - Kimbara.
Dolla, Dom - Girl$
Disclosure - She?s Gone, Dance On.
Bryan, Zach - Pink Skies.
Twenty one pilots - The Craving
Lón - Hours
Big Thief - Certainty
Shaboozey - A Bar Song
Lola Young - Messy
Mt. Joy - Highway Queen
The Pogues - If I Should Fall From Grace To God
Soft Play - Everything and Nothing
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Retro Stefson er hampað sem líflegasta bandi landsins og Ekki vanmeta Pascal Pinon, Ylja flytur angurværa þjóðlagatónlist, Kiriyama Family heillar landann með grúvknúnu mjúkpoppi og Bubbi segir sögur úr þorpinu. Þórunn Antonía og Berndsen rugla saman reytum sínum, Friðrik Dór er vélrænn, The Vintage Caravan fer í ferðalag og Stúlknatríóið Charlies reynir við ameríska drauminn. Það er sumar hvern einasta dag hjá Mannakorni, Hreimur Örn er agndofa, Skálmöld berst við börn Loka, og Helgi Júlíus hvetur Íslendinga til að standa saman.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í öðrum hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2012 eru: Unnsteinn Manúel Stefánsson, Haraldur Leví Gunnarsson, Bjartey Sveinsdóttir, Guðný Gígja Skjaldardóttir, Víðir Björnsson, Karl Magnús Bjarnason, Jónas Sigurðsson, Bragi Valdimar Skúlason, Guðmundur Kristinn Jónsson, Magnús Eiríksson, Jófríður Ákadóttir, Ásthildur Ákadóttir, Bubbi Morthens, Daði Birgisson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Davíð Berndsen, Friðrik Dór Jónsson, Þorkell Máni Pétursson, Alma Guðmundsdóttir, Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir, Klara Ósk Elíasdóttir, Þráinn Árni Baldvinsson og Björgvin Sigurðsson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Retro Stefson - Qween
Retro Stefson - Julia
Retro Stefson - Glow
Retro Stefson - She Said
Ylja - Konan með sjalið
Ylja - Á rauðum sandi
Ylja - Út
Kiriyama Family - Sneaky Boots
Kiriyama Familiy - Weekends
Kiriyama Familiy - Heal
Kiriyama Family - Portobello
Mannakorn - Sumar hvern einasta dag
Mannakorn - Á meðan sumar framhjá fer
Mannakorn - Vals númer tvö
Sálin hans Jóns míns - Hjartadrottningar
Lay Low - The Backbone
Andrea Gylfadóttir - Prinsessan (Live Stúdíó 12)
Hreimur Örn Heimisson - Agndofa
Bryan Ferry - Love Is The Drug (Live í Hörpu)
The Vaccines - Ó Reykjavík (Live í Listasafninu)
Pascal Pinon - Ekki vanmeta
Pascal Pinon - Somewhere
Pascal Pinon - Þerney
Bubbi Morthens - Óskin
Bubbi Morthens - Fjórtán öskur á þykkt
Bubbi Morthens - Þorpið
Þórunn Antónía - For Your Love
Þórunn Antónía - Out Of Touch
Þórunn Antónía - Too Late
Þórunn Antónía - So High
Þórunn Antónía - Electrify My Heartbeat
Friðrik Dór - Út að heimsenda
Friðrik Dór - Guðdómleg
The Vintage Caravan - Going Home
The Vintage Caravan - Midnight Meditation
The Vintage Caravan - Do You Remember
The Charlies - Fighter On The Dance Floor
The Charlies - Game Over
Bruno Mars - Just The Way You Are
The Charlies - Monster (eat me)
The Charlies - Hello Luv
Skálmöld - Gleipnir
Skálmöld - Narfi
Skálmöld - Miðgarðsormur
Helgi Júlíus og Valdimar - Stöndum saman
Helgi Júlíus og Valdimar - Þú ert mín