14:03
Góðan daginn, mannkynssaga

Í þáttaröðinni „Góðan daginn, mannkynssaga“ verður fjallað um það hvernig mannkynssagan getur birst allt í kringum okkur í hversdagslegum hlutum. Á bókakápu frá stríðsárunum er auglýsing fyrir útsendingar BBC til hernumdra landa, póstkort frá upphafi 20. aldar snýst um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, í þjóðlögum og textum við þau birtast löngu horfnir kóngar. Tekin verða dæmi um þetta í þáttunum og leikin tónlist sem tengist efninu. Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Ekki leyfi fyrir netáhorf eftir útsendingu.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,