12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 23. júlí 2026

Útvarpsfréttir.

Verðbólga jókst milli mánaða og mælist fimm komma þrjú prósent. Litlar líkur eru á að hún nái niður fyrir fjögurra komma sjö prósenta markið sem kjarasamningar miðast við. Formaður VR segir stöðuna alvarlega.

Yfirhagfræðingur hjá HMS segir kaupendur á húsnæðismarkaði í sterkari samningsstöðu en áður. Kaupgeta er hinsvegar takmörkuð og íbúðaverð hátt.

Borgarstjóri er vongóð um að farsæl lausn finnist á næstu dögum og vikum í húsnæðismálum kaffistofu Samhjálpar. Mjög mikilvægt sé að starfsemin hafi öruggan stað í Reykjavík.

Bandaríkin og Sádi-Arabía skrifuðu undir tvo kjarnorkusamninga í gær. Þeir tryggja aðgengi bandarískra fyrirtækja að kjarnorkuáætlun Sádi-Araba og gætu leitt til þess að þeir auðgi úran í framtíðinni.

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur er komin í lag og siglir samkvæmt áætlun. Framkvæmdastjóri vonar að þrautagöngu skipsins sé lokið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,