19:00
Sumartónleikar
Opnunartónleikar Proms-hátíðarinnar í London

Hljóðritun frá opnunartónleikum Proms, sumartónlistarhátíðar Breska útvarpsins, sem fram fóru í Royal Albert Hall í London, 17. júlí.

Á efnisskrá:

-Fanfare for the Common Man eftir Aaron Copland.

-Ameríkumaður í París eftir George Gershwin.

-Píanókonsert í G-dúr eftir Maurice Ravel.

-That the sunrise not leave us unmoved eftir Josephine Stepenson - frumflutningur.

-For St. Cecilia, Til heilagrar Sesselju, op. 30 fyrir tenór, kór og hljómsveit eftir Gerald Finzi.

Fram koma Sinfóníuhljómsveit Breska útvarpsins, Kór Sinfóníuhljómsveitar Breska útvarpsins og kammerkór Breska útvarpsins, BBC söngvararnir.

Einleikari á píanó: Yunchan Lim.

Einsöngvari: Thomas Atkins tenór.

Stjórnandi: Dalia Stasevska.

Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Er aðgengilegt til 22. ágúst 2026.
Lengd: 1 klst. 30 mín.
,