17:30
Sama viðtalið um ESB
Hvað sögðu bændur? Baldvin og Patrekur ræða viðtölin við bændur um ESB

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.

Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?

Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza

Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson

Grafík: Kolbrún Þóra Löve

Ljósmyndun: Ragnar Visage

ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans

Eftir viðtölin við tvo bændur ræddu Baldvin og Patrekur sín á milli um það helsta sem kom þar fram. Í viðtölunum var m.a. rætt um hvaða breytingar verði í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 18 mín.
,