22:08
Sumarmál
Svavar og töfragleraugun, börn og náttúran í Veganestinu og fugl dagsins

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Við töluðum við Svavar Jónatansson í Mannlega þættinum í fyrra þar sem hann sagði okkur frá bráðsniðugu verkefni sem hann var að vinna með heimilisfólkinu á Hrafnistu þar sem þau settu upp sýndarveruleikagleraugu og fengu að upplifa aðstæður sem þau annars ættu erfitt með að upplifa. Nú hefur hann farið með þetta verkefni á næsta stig því hann fór í tæplega tveggja vikna hringferð um Ísland og safnaði myndefni frá áhugaverðum stöðum allt í kringum landið sem hann mun svo bjóða upp á sem sýndarveruleikaferðalög og fróðleik fyrir heimilisfólk Hrafnistu og jafnvel víðar. Svavar sagði okkur allt af þessu sniðuga verkefni í þættinum.

Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistarfrömuður var svo með okkur í dag með Veganestið eins og alla fimmtudaga í sumar. Í þetta sinn talaði hann um börn og útivist. Samverustundir í náttúrunni eru ómetanlegar og þar verða til minningar sem endast. Páll Ásgeir fór betur með okkur yfir þetta í þættinum.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)

Will You Still Love Me Tomorrow / Amy Winehouse (Gerry Goffin og Carole King)

Pale Blue Eyes / The Velvet Underground (Lou Reed)

Ó borg, mín borg / Bubbi og Haukur Morthens (Vilhjálmur frá Skáholti er textahöfundur en Þórir Baldursson útsetti)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,