22:08
Sumarmál
Brandari sem varð að verðlaunaherferð, bæjarperla úr Dölunum og fugl dagsins

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Við forvitnuðumst um Kristján Gauta Karlsson í dag, en hann var áður blaðamaður á Skessuhorni, ofngæslumaður í járnblendi á Grundartanga og starfsmaður í Þörungaverksmiðju á Reykhólum auk þess að frysta loðnuhrogn og vinna við þýðingar. Frysta og þýða, ekki þíða - eins og hann orðar það. Hann vinnur nú í auglýsingabransanum og fékk hugmynd sem átti fyrst bara að vera brandari og átti alls ekki að kynna fyrir viðskiptavini, en til að gera langa var hún ekki bara kynnt fyrir viðskiptavininum heldur var framleidd heil herferð upp úr hugmyndinni sem vann fern verðlaun her á landi og nú síðast tvenn verðlaun á auglýsingahátíðinni í Cannes í Frakklandi. Kristján Gauti sagði okkur frá þessu ævintýri í þættinum í dag.

Við spjölluðum svo aðeins við Hinrik Wöhler sem sendir okkur bæjarperlur á þriðjudögum í sumar eins og í fyrra. Í fyrsta innslagi sumarsins kíkir Hinrik í Dalina og spókar sig í Búðardal og nágrenni. Fyrsti áfangastaðurinn var Erpsstaðir, þar fer fram fjölbreytt starfsemi, en á bænum er rekið kúabú samhliða framleiðslu á ostum, ís og skyri. Hinrik ræddi þar við bóndann og mjólkurfræðinginn Þorgrím Einar Guðbjartsson. Síðan lá leiðin niður að höfninni í Búðardal í Vínlandssetrið Leifsbúð. Þar eru sagðar sögur af landafundum Eiríks rauða og Leifs heppna. Anna Sigríður Grétarsdóttir, rekstrarstjóri safnsins, sagði frá sýningunni og þessum fornu tímum í fyrstu Bæjarperlu sumarsins.

Og auðvitað er fugl dagsins á sínum stað.

Tónlistin í þættinum:

Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)

Fly on the Wings of Love / Olsen Bræður (Jörgen Olsen)

Skref fyrir skref / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,