07:03
Morgunvaktin
Hjúskaparlög, hiti og hestamennska

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Fjórar nýjar brýr, vegir og hringtorg eru komin í gagnið í Hornafirði. Við vígsluna söng Kvennakór Hornafjarðar og við spjölluðum um tónlist og samgöngur við Örnu Ósk Harðardóttur kórfélaga.

Við fjölluðum um lífeyrismál hjóna. Það er að segja; hvernig fer með lífeyriseign og -réttindi fólks við skilnað. Lagðar eru til breytingar á gildandi lögum í drögum að frumvarpi að nýjum hjúskaparlögum. Við fórum yfir málið með Hrefnu Friðriksdóttur lagaprófessor.

Arthur Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall. Veður, stjórnmál og fótbolti komu við sögu. Afleiðingar hitabylgjunnar í Evrópu hafa verið miklar á menn og náttúru, Þjóðverjar eru svekktir eftir tap í 32-liða úrslitum HM og lögregla býr sig undir mótmæli á landsfundi AfD.

Það líður að Landsmóti hestamanna - það fer fram á Hólum í Hjaltadal, keppni hefst á sunnudaginn. Við kynntum okkur keppnismálin; í hverju er keppt, til hvers horfa dómarar, hvað skilur að góðan hest og frábæran, já og góðan og frábæran knapa? Hulda Geirsdóttir hrossaræktandi, dómari og dagskrárgerðarmaður útskýrði þetta fyrir okkur.

Tónlist:

Álftagerðisbræður - Erla.

Four Others - Ray of light.

Klaufar - Ef allt gengur að óskum.

Klaufar - Fólk.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,