Tónlistin í þættinum:
Elektra (2017) eftir Helga Rafn Ingvarsson. Kammersveitin Elektra flytur. En hópurinn er svo skipaður: Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó ; Emilía Rós Sigfúsdóttir, flauta og bassaflauta ; Helga Björg Arnardóttir, klarínett og bassaklarínett ; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla og Margrét Árnadóttir, selló). Útgefið á plötunni Elektra ensemble (2019).
Stúfhenda eftir Guðmund Stein Gunnarsson. Ensemble Adapter flytur. Flytjendur: Ensemble Adapter (Kristjana Helgadóttir, flauta og hristur ; Ingólfur Vilhjálmsson, klarínetta og hristur ; Gunnhildur Einarsdóttir, harpa og flauta (e. samba flute) ; Matthias Engler, slagverk, munnharpa og ýmsar flautur). Útgefið á plötunni Clavis Metrica árið 2025.
Flutter eftir Þuríði Jónsdóttur. Verkið var samið í minningu Oliviers Messiaen og var pantað af Ríkisútvarpinu í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli hans. Verkið er í fjórum þáttum. Mario Caroli leikur einleik á flautu með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Daníel Bjarnason. Hljóðritun fór fram í Hörpu Eldborg. Útgefið á plötunni Occurrence árið 2021.
Hús við götu, lag eftir Hauk Tómasson við ljóð eftir Þórarin Eldjárn. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzó-sópran syngur einsöng með Caput ensemble. Útgefið á plötunni Grannmetislög árið 2010.
In questa reggia - aría Turandot úr óperunni Turandot (1921-26) eftir Giacomo Puccini. Giuseppe Adami og Renato Simoni eru höfundar líbrettós. Elín Ósk Óskarsdóttir sópran syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Kurts Kopecky. Útgefið á plötunni Aríur eftir Verdi, Puccini, Giordano og fleiri árið 2006.
Nessun dorma - aría Calafs prins úr óperunni Turandot (1921-26) eftir Giacomo Puccini. Giuseppe Adami og Renato Simoni eru höfundar líbrettós. Elmar Þór Gilbertsson tenór syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands, með syngja einnig Kór Íslensku óperunnar; Óperukórinn í Reykjavík og Karlakór Kópavogs. Stjórnandi er Daníel Bjarnason. Hljóðritað á tónleikunum Klassíkin okkar í Eldborgarsal Hörpu, haustið 2017.