Tónlistin í þættinum:
Preludio eftir Hector Ayala. Rúnar Þórisson leikur einleik á gítar.
(Útg. 2023 á plötunni Latin America).
Það mótlæti þankinn ber : fyrir 2 píanó (2009) eftir Þórð Magnússon. Anna Guðný Guðmundsdóttir og Snorri Sigfús Birgisson.
Umritun á verki sem skrifað var að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og frumflutt á tónleikum sveitarinnar í maí 2007 undir stjórn Rumon Gamba. Verkið var frumflutt í útgáfu fyrir 2 píanó á Myrkum músíkdögurm í janúar 2011.
(Útg. 2013 á plötunni La poesie : kammertónlist eftir Þórð Magnússon)
Kom vinur eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. Ljóðið orti Vilborg Dagbjartsdóttir. Schola cantorum syngur, stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Hljóðritað í Hallgrímskirkju í september 2020.
Gloria all'Egitto úr óperunni Aida eftir Giuseppe Verdi. Karlakórinn Fóstbræður og Óperukórinn syngja, Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur. Stjórnandi er Garðar Cortes.
Ég lít í anda liðna tíð eftir Sigvalda Kaldalóns, ljóðið orti Halla Eyjólfsdóttir. Eggert Stefánsson syngur, píanóleikari ókunnur. Hljóðritunin var gerð í Berlín árið 1927.
Aurtxo txikia úr Þremur baskneskum söngvum eftir Francisco Javier Jáuregui. Flytjendur eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran ásamt Raoncevalles Duo (Elena Jáuregui, fiðla ; Francisco Javier Jáuregui, gítar)
Hlíðin mín fríða, lag eftir Friedrich Ferdinand Flemming, ljóðið orti Jón Thoroddsen.
Flytjendur: Gadus Morhua (Björk Nielsdóttir, langspil ; Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, barokkselló, söngur ; Eyjólfur Eyjólfsson, söngur, þverflauta)
2023 - Stúdíóupptaka.