15:08
Húsmæður Íslands
Á húsmóðirin erindi inn í framtíðina?
Húsmæður Íslands

Hvernig skilgreinum við húsmæður, hvaða hlutverkum gegndu þær á fyrri tíð og hvernig endurspeglast þau hlutverk í samtíma okkar? Sigurbjörg Elín Hólmarsdóttir fjallar um húsmæður nú og áður fyrr, með áherslu á arf kvenna. Farið verður yfir stofnun húsmæðraskóla, þróun eldhússins, borðsiði, matreiðslubækur, þriðju vaktina og nútíma nám í sjálfbærni svo eitthvað sé nefnt.

Umsjón: Sigurbjörg Elín Hólmarsdóttir.

Aðstoð við samsetningu: Guðni Tómasson.

Húsmæður Íslands 4. þáttur af fjórum: Á húsmóðirin erindi inn í framtíðina?

Hvað getum við tekið með úr starfi húsmæðra inn í framtíðina og hverjir eiga að vinna vinnuna?

Viðmælendur í þessum þætti:

Bryndís Fiona Ford, skólameistari Hallormsstaðaskóla (Gamla húsmæðraskólans)

Erla Hulda Halldórsdóttir, prófessor við HÍ

Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður. (Vinkonuspjall)

Sigríður Ólafsdóttiir húsfreyja. (Ömmuspjall)

Lesari í þættinum er Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir

Var aðgengilegt til 07. september 2024.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,