21:05
Íslendingasögur
Geir A. Guðsteinsson
Íslendingasögur

Allir hafa sögu að segja. Í þættinum Íslendingasögur segir fólkið í landinu sögur; sögur af atburðum sem það hefur upplifað, lífsreynslusögur, gamansögur, alla vega sögur.

Geir A. Guðsteinsson blaðamaður og ritstjóri hélt til Raufarhafnar sumarið 1965. Hann nam til loftskeytamanns á þessum tíma og hafði fengið vinnu því tengt en áður en hann vissi af var hann orðinn þátttakandi í síldarævintýrinu og aflatölur hljómuðu eins spennandi í hans eyrum og úrslit kappleikja. Geir segir frá böllum í félagsheimilinu, því þegar Reykjaborg RE-25 var svo drekkhlaðin að hún sökk og hvernig var að snúa aftur til Reykjavíkur angandi af peningalykt.

Umsjónarmaður: Haukur Ingvarsson

Var aðgengilegt til 01. júlí 2024.
Lengd: 21 mín.
e
Endurflutt.
,