18:10
Þefvarpið
Fyrsti þáttur: Kaupstaðarlyktina færðu hjá okkur
Þefvarpið

Áhugi á lyktarskyninu hefur vaxið mikið síðustu ár, því lykt rammar inn allan okkar veruleika; hvort sem það er af umhverfinu, matnum, húsakynnum, eða líkömum okkar. Lykt færir okkur lykla að daglegu lífi í fortíð og samtíð þar sem hún tengist beint við minningar og vekur með okkur ólíkar tilfinningar. Í þessum þáttum ætla Vilborg Bjarkadóttir og Áki Guðni Karlsson að ljúka upp fyrir hlustendum heimi lyktarinnar með aðstoð nokkurra viðmælenda, sem allir hafa sögur að segja af lykt.

Efni: Lykt í sveit og borg.

Viðtöl: Kormákur Geirharðsson, verslunarmaður og Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur.

Lesarar: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson.

Var aðgengilegt til 01. júlí 2024.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,