Jeff Who? - Ljótu hálfvitarnir
Í úrslitaþætti Popppunkts mætast hinir bráðefnilegu popparar í Jeff Who? og Ljótu hálvitarnir sem vita nánast allt.
Stigameistarar fyrstu umferðar mætast í fyrsta leik 8-liða úrslita Popppunkts. Grallararnir í Ljótu hálfvitunum mæta rokkhundunum í Reykjavík! og verður eflaust barist til síðustu þriggja stiga spurningar um Boney M!

Dr. Gunni og Felix Bergsson stjórna spurningakeppni hljómsveita. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - já og tónlistarhæfileikar. Meðal þeirra hljómsveita sem keppa eru Buff, Ljótu hálfvitarnir, Jeff Who?, Baggalútur, Hvanndalsbræður, múm, Sigur Rós og Áhöfnin á Halastjörnunni. Þættirnir voru frumsýndir á RÚV sumarið 2009. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.