Popppunktur

Reykjavík! - Eurobandið

Í fyrsta þætti Popppunkts mætast rokkararnir í Reykjavík! og Eurobandið - ólíkari verða böndin varla. Reykjavík! spilar gaddavírsrokk en Eurobandið er eina bandið í heiminum sem spilar bara Eurovisionlög. Fyrir hönd Reykjavíkur! keppa Bóas söngvari, Haukur gítarleikari og Kristján trommari. Fyrir hönd Eurobandsins keppa andlit sveitarinnar, þau Friðrik Ómar og Regína Ósk auk Róberts bassaleikara.

Frumsýnt

8. júní 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Popppunktur

Popppunktur

Dr. Gunni og Felix Bergsson stjórna spurningakeppni hljómsveita. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - og tónlistarhæfileikar. Meðal þeirra hljómsveita sem keppa eru Buff, Ljótu hálfvitarnir, Jeff Who?, Baggalútur, Hvanndalsbræður, múm, Sigur Rós og Áhöfnin á Halastjörnunni. Þættirnir voru frumsýndir á RÚV sumarið 2009. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.

Þættir

,