Við byrjum þáttinn á því að fara í ræturnar. Nokkuð bókstaflega. Við ætlum að ræða lífræna ræktun hér á landi og hvað dró Önnu Margréti Björnsdóttur, verkefnastjóra Lífræna dagsins, að henni.
Við höldum áfram að ræða mál Yazans Tamimi eftir fréttayfirlitið hálf átta. Stefán Már Gunnlaugsson, formaður Duchenne-samtakanna á Íslandi, verður gestur okkar.
Við ræðum upplýsingaóreiðuna og lýðræðið við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar.
Er málaþurrð á Alþingi? Það segir Sigmar Guðmundsson varaformaður þingflokks Viðreisnar. Hann segir alla orku ríkisstjórnarinnar hafa farið í eigið ósætti vegna máls Yazans frekar en að ræða brýn hagsmunamál sem snerta þjóðina. Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna er því ekki sammála. Þeir mæta til okkar upp úr átta.
Katrín prinsessa af Wales sneri aftur til starfa á þriðjudaginn eftir rúmlega átta mánaða veikindaleyfi. Við ætlum að ræða endurkomuna og málefni konungsfjölskyldunnar við Önnu Lilju Þórisdóttur, fréttamann og rojalista.
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, verður gestur okkar í lok þáttar þegar við ræðum sprengjur í símboðum, en fjöldi Hezbollah-liða eru enn í lífshættu eftir að þúsundir símboða sprungu í Líbanon í gær.
Tónlist:
Benni Hemm Hemm - Miklabraut.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Himinn Og Jörð.
Lacey, Yazmin, Ezra Collective - God Gave Me Feet For Dancing.
Vampire Weekend - Harmony Hall.
CHANGE - Yakkety yak smacketty smack.
THE DANDY WARHOLS - Bohemian Like You.
Jónfrí - Andalúsía.
Bridges, Leon - Peaceful Place.