Það vakti athygli fyrr í vikunni að stórstjarnan Beyonce hlaut ekki tilnefningu til bandarísku kántríverðlaunanna þrátt fyrir að eiga eitt vinsælasta kántrílag ársins, Texas Hold’Em. Allt frá því Beyonce gaf út plötuna Cowboy Carter hafa heitar umræður verið uppi um það hvar hún passar inn í kántrísenuna. Arnar Eggert Thoroddsen aðjúnkt í félagsfræði og tónlistarsérfræðingur spjallar við okkur um málið.
Áströlsk stjórnvöld hyggjast lögfesta að börnum og unglingum verði ekki heimilt að nota samfélagsmiðla. Við ætlum að ræða þessa nálgun og hvort það sé yfirhöfuð hægt að banna samfélagsmiðla ákveðinna aldurshópa við Skúla Braga Geirdal, verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd, sem hefur beitt sér töluvert í þessum málum.
Björn Berg Gunnarsson kíkir til okkar og ræðir það hvernig hægt er að fara snemma á eftirlaun.
Eftir átta fréttir ætlum við að halda áfram að ræða fjárlagafrumvarpið sem kynnt var í gær. Þórólfur Matthíasson, prófessor emeritus í hagfræði, verður gestur okkar.
Íbúar í Hlíðahverfi og Vesturbæ Reykjavíkur og á Kársnesi í Kópavogi hafa stofnað samtökin Hljóðmörk gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Félagsmenn vilja að gripið verði til aðgerða vegna hávaðamengunar. Manda Jónsdóttir er ein þeirra og lítur við hjá okkur.
Við ræðum fyrstu og einu kappræður Harris og Trump sem fóru fram í nótt með Nichole Leigh Mosty.
Tónlist:
SPRENGJUHÖLLIN - Verum í sambandi.
Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit).
VALDIMAR GUÐMUNDSSON & ÞORSTEINN EINARSSON - Ameríka (Hljómskálinn).
Sigur Rós - Við spilum endalaust.
Ragnhildur Gísladóttir - Hvað Um Mig Og Þig?.
METRONOMY - The Look.
BRUCE SPRINGSTEEN - Born in the U.S.A.