Morgunútvarpið

Innflytjendur og íslenska, Kína, mannauðsmál, nýja vinstrið, vopnaburður ungmenna

Í gær kynnti félags- og vinnumarkaðsráðuneytið skýrslu sem OECD vann. Niðurstöðurnar sýna m.a. aðeins 18% innflytjenda á Íslandi tali íslensku. Íslenskunám þarf vera aðgengilegt og fólk þarf hafa efni á því. Lísbet Einarsdóttir framkvæmdastjóri Starfsafls fræðslusjóðs mætti í fyrsta kaffibolla.

Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum, var gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf átta. Á dögunum sögðu Japanir Kínverja hafa ógnað öryggi og brotið gegn fullveldisrétti landsins þegar kínversk herflugvél fór í heimildarleysi inn fyrir lofthelgi Japans. Spenna hefur aukist aftur á þessum slóðum og talsverður núningur hefur orðið milli stjórnvalda Kína og Filippseyja.

Það er óneitanlega haustlegt úti og minningar um sól og sumar -hjá þeim sem náðu finna það einhversstaðar, eflaust farnar dofna. Mannauðsdeildir á vinnustöðum víða um land standa í ströngu við finna upp leiðir til peppa starfsfólk inn í veturinn. Við spjölluðum við Adríönu Karólínu Pétursdóttur, formann Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi.

Við ræddum nýja vinstrið í Evrópu, sérstaklega Bandalag Söhru Wagenknecth sem er á vinstri væng þýskra stjórnmála, en boðar ýmis stefnumál sem minna á þau sem hægri flokkar halda á lofti. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, kom til okkar.

Dómsmálaráðherra boðaði hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna eftir ríkisstjórnarfund í fyrradag og í gær bárust fréttir af því til stæði nota málmleitartæki í öryggisgæslu á framhaldsskólaböllum á höfuðborgarsvæðinu. Hvernig líður framhaldsskólanemum með þetta allt saman? Embla María möller forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema leit við hjá okkur.

Tónlist:

Teitur Magnússon - Vinur vina minna.

Childish Gambino - Redbone.

Spacestation - Hvítt vín.

Pulp - Common people.

Paul Simon - Late in the Evening.

FLOTT - Segðu það bara.

Frumflutt

5. sept. 2024

Aðgengilegt til

5. sept. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,