Út er komið tímarit Hinsegin daga en það hefur komið út árlega í 24 ár. Tímaritið er í ár efnismeira en nokkru sinni fyrr. Líkt og fyrri ár fjallar tímaritið um ýmis mál sem brenna á hinsegin samfélaginu um þessar mundir auk þess að lyfta hinsegin sögu, menningu og listum að ónefndri umfjöllun um helstu viðburði á dagskrá Hinsegin daga 2024. Ritstjóri tímaritsins er Bjarndís Helga Tómasdóttir og hún sagði okkur nánar frá efnistökum.
Neyðarfundir hafa verið haldnir í Bretlandi vegna mótmæla og óeirða sem þjóðernissinnar hafa staðið fyrir. Forsætiráðherrann segir þetta eigi ekkert skylt við mótmæli og hefur boðað hörð viðbrögð við því. Óeirðaseggir hafa verið handteknir og fá flýtimeðferð fyrir dómstólum. Við hringdum til Lundúna og heyrðum í Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths sem þar er búsett og hefur fylgst með málum.
Hvernig ætli fyrsta helgin í embætti forseta Íslands sé? Þessu veltum við fyrir okkur og þá dugði ekkert annað en að hafa samband við Höllu Tómasdóttur sjálfa, nýjan forseta Íslands. Hún var gestur okkar og sagði okkur upp og ofan af fyrstu dögunum í embætti.
Og í lok þáttar heyrðum við í Sævari Helga Bragasyni sem var að þessu sinni með vísindahorn sitt beint frá Danmörku.
Lagalisti:
Nýdönsk - Frelsið
Bubbi Morthens - Tveir tveir fjórir
Roxy Music - More Than This
The Kooks - Naive
Valdís og JóiPé - Þagnir hljóma vel
Kaleo - All the pretty girls
The Police - Every Little Thing She Does is Magic
Árný Margrét - I went outside
Depeche Mode - Policy Of Truth