Mikil úrkoma hefur verið á sunnanverðu landinu og veðurspár gera ráð fyrir áframhaldandi úrkomu. Búist er við vatnavöxtum í Þórsmörk og nágrenni í dag og vöð geta orðið ófær. Við heyrðum í Guðmundi Fannari Markússyni, staðarhaldara í Básum, og fengum hann til að fara yfir stöðuna í Þórsmörk með okkur.
Kvennaathvarfið er þessa daganna að kynna nýja vitundarvakningarherferð sem hefur fengið heitið „Þekkjum mynstrið“. Herferðin leggur áherslu á að fræða almenning um mismunandi birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum og um leið vekja athygli á fjölbreyttri þjónustu Kvennaathvarfsins. Í herferðinni er meðal annars notast við gervigreind við gerð markaðsefnisins og þannig leitast við að gera efnið áhrifaríkara. Þær Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins og Arna Þorsteinsdóttir markaðsráðgjafi koma til okkar.
Dómsmálaráðherra hefur gefið það út að hún ætli að leggja fram frumvarp sem myndi gera yfirvöldum kleift að svipta fólk alþjóðlegri vernd sem það hefur fengið hér á landi, verði það uppvíst að alvarlegum brotum. Mál brotamanns sem hlaut alþjóðlega vernd hér á landi hefur verið til umræðu undanfarið. Ráðherrann segist ætla að leggja frumvarpið fram í haust. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kom til okkar að ræða þetta.
Við settum okkur í samband beint til Parísar, þar sem Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður er að fylgjast með Ólympíumótinu sem þar fer fram.
Í lok þáttar ræddum við svo við Gottsvein Eggertsson, bónda í Holti í Álftaveri. Sex hektara tún hans er ónýtt eftir jökulhlaupið og líklegt að fé hafi orðið fyrir hlaupinu.
Lagalisti:
Mannakorn - Gamli Skólinn
Corinne Bailey Rae - Put Your Records On
Lenny Kravitz - Again
Unnsteinn Manuel Stefánsson og Haraldur Ari Stefánsson - Til þín
Crash Test Dummies - Mmm Mmm Mmm Mmm
Bronski Beat - Smalltown boy
Jónfrí og Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel
Benjamin Ingrosso - Look who's laughing now
U2 - City Of Blinding Lights
Prince - When doves cry
Totally Enormous Extinct Dinosaurs - Crosswalk