Margir þeir sem læra íslensku sem annað mál, hvort sem þeir búa erlendis eða hérlendis, hafa ekki alltaf gengið að tækifærum til að brúka málið sem vísum. Mismikið er lagt upp úr því að íslenska sé samskiptamálið og nemendur finna það strax að málnotendur eru fljótir að skipta yfir í enskuna til dæmis sé viðmælandi ekki í nægri æfingu að tala málið. Þetta er meðal þess sem Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, umsjónarmaður íslenskunáms við Háskólasetur Vestfjarða segir. Hann var á línunni og við ræddum íslenskunámið og átakið Gefum íslensku séns sem miðar að því að auka vitund fólks fyrir máltileinkun.
Er ferðaþjónustan á Íslandi að verðleggja sig alltof hátt og gera erlenda ferðamenn fráhverfa landinu? Mikið hefur verið talað um samdrátt í ferðaþjónustu undanfarið og þá staðreynd að ferðamenn virðast upp á síðkastið spenntari fyrir öðrum löndum sem bjóða upp á sambærilega ferðaþjónustu. Við könnumst öll við verðbólgu og dýrtíð, en er svo komið að verðlagning á Íslandi er að ganga fram af ferðamönnum? Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, mætti til okkar í spjall.
Héraðsmiðlar á Íslandi hafa miklar áhyggjur af rekstrinum og hafa skorað á stjórnvöld að skipa starfshóp til að fara yfir stöðu miðlanna. Eyjafréttir, fjölmiðill frá Vestmannaeyjum, hélt á dögunum ráðstefnu til að vekja athygli á veikri stöðu landsbyggðarblaða. Fjölmiðlamenn tala um að fjármagn og tekjur séu þannig að erfitt sé að ráða gott fólk - og svo erfitt að halda í góðan starfskraft. Þá getur þetta líka haft mikil áhrif á efnistök miðlanna. Við heyrðum í Ómari Garðarssyni, ritstjóra Eyjafrétta, og fengum hann til að segja okkur betur frá þessari stöðu.
Til að fara yfir fréttir vikunnar með okkur komu þau Auðun Georg Ólafsson, fréttastjóri á K100, og Birta Björnsdóttir, sem eru yfir erlendum fréttum á fréttastofu RÚV.
Lagalisti:
Klara Elias - Eyjanótt
Stranglers - Always the sun
GDRN - Háspenna
Bubbi Morthens - Tveir tveir fjórir
Baggalútur - Allir eru að fara í kántrí
Simple Minds - Alive and Kicking
Deee-Lite - Groove is in the heart