Morgunútvarpið

Tónleikar í Lystigarðinum, vísindahorn Sævars, grænmetisræktun í Hafnarfirði, Reykjanesbær þrítugur og Velsældarþing.

Í sumar fer fram tónleikaröð til styrktar Lystigarðinum á Akureyri. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Lystigarðsins og verður eyrnamerktur vetrarþjónustu. Reynir Grétarsson, veitingamaður á veitingastaðnum Lyst sem er staðsettur í garðinum, var á línunni.

Sævar Helgi Bragason kom til okkar með nýjustu fréttir af vísindunum.

Á eftir hittast 24 fjölskyldur í Hafnarfirðinum, þar af 13 flóttafjölskyldur, til rækta saman grænmeti. Fjölskyldurnar fræðslu frá garðyrkjufræðingi og geta byrjað setja upp garðana sína á meðan þau kynnast vinafjölskyldum.

Carmen Fuchs, sérfræðingur í málefnum flóttafólks, iðjuþjálfi og lýðheilsufræðingur, sagði okkur betur frá verkefninu.

Í dag er Reykjanesbær 30 ára en bærinn varð til við sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994. Bærinn mun fagna tímamótunum með ýmsum hætti. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, var á línunni.

Velsældarþing er haldið í annað sinn og hefur vakið athygli víða um heim sem skilar sér í því alþjóðastofnanir, sérfræðingar og fræðimenn taka þátt í þinginu þessu sinni. Við fengum til okkar Dr. Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sem er ráðstefnustjóri, til segja okkur nánar hvað á ræða þarna.

Tónlist:

Helgi Björnsson - Himnasmiðurinn.

Júlí Heiðar og Kristmundur Axel - Ég er.

Bubbi Morthens og Das Kapital - Blindsker.

Jess Glynne - Don't Be So Hard On Yourself.

Teddy Swims - The Door.

Todmobile- Stúlkan.

Albatross - Ég sólina.

The Stranglers - Skin Deep.

Lizzo - JUICE.

Elton John- I'm still standing.

Axel Flóvent - When the Sun Goes Down.

Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit.

Frumflutt

11. júní 2024

Aðgengilegt til

11. júní 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,