Verkfallsaðgerðir FFR, áfram Ísland, vorverkin, Liverpool klúbburinn 30 ára og fréttir vikunnar.
Félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli. Um 80% félagsmanna FFR greiddu atkvæði með aðgerðunum. Við slóum á þráðinn til Unnars Arnar Ólafssonar, formanns FFR.
Starfshópur mennta- og barnamálaráðherra sem Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ, leiddi hefur nú skilað tillögum sínum til ráðherra um hvernig hátta eigi afreksíþróttastarfi á Íslandi til að hámarka árangur íþróttafólks og efla íþróttir almennt í landinu. Vésteinn var gestur Morgunútvarpsins þegar vinna starfshópsins fór af stað og mætti nú til okkar með niðurstöðurnar.
Við höfum blaðrað ýmislegt misgáfulegt um garðverkin í þættinum í vikunni. Því var auðvitað tilvalið að kalla til fagmann til að leiðbeina okkur frekar. Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur leit við hjá okkur í kaffispjall um vorlauka og fleira til.
Liverpool klúbburinn á Íslandi fagnar þrjátíu ára afmæli um þessar mundir. Að því tilefni verður blásið til heljarinnar veislu þann 8. Maí. Tveir fyrrum leikmenn mæta í fjörið svo eitthvað sé nefnt. Katrín Magnúsdóttir og Elísabet Ósk Guðmundsdóttir, stjórnarmeðlimir í Liverpool klúbbnum kíktu í heimsókn.
Eins og alltaf á föstudögum fáum við til okkar góða gesti til að fara yfir það sem þeim þótti standa upp úr í fréttum vikunnar. Þau Vigdís Häsler, lögfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og Sveinn Waage, markaðsstjóri og fyrirlesari fóru yfir þær með okkur.