• 00:05:44Þögnin Sirrý Arnardóttir
  • 00:20:24Björn Hafþór á Stöðvarfirði
  • 00:38:52Guðaveigar-ný íslensk kvikmynd

Mannlegi þátturinn

Þögnin með Sirrý Arnardóttur,Björn Hafþór á Stöðvarfirði,Guðaveigar ný kvikmynd.

“Að hvíla vel í þögninni getur verið mikilvægur hluti af öruggri tjáningu. Í vinnu, stjórnmálum, fjölmiðlum, á Teams og vinasamböndum.” segir Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, háskólakennari, rithöfundur og fjölmiðlakona. Við töluðum um mikilvægi þagnarinnar í dag.

Það er ekki algengt fólk á áttræðisaldri gefa út geisladiska með eigin tónlist en við heyrðum af manni á Stöðvarfirði sem réðst í það verkefni á árinu og er diskurinn komin út, Við skulum ekki hafa hátt , heitir diskurinn og lagahöfundurinn heitir Björn Hafþór Guðmundsson. Björn Hafþór hefur starfað við sveitastjórnarmál fyrir austan í áratugi og verið oddviti, setið í sveitarstjórnum og starfað sem sérfræðingur og þegar hann var hættur vinna, hefur hann verið leiðsögumaður með erlenda ferðamenn víða um austurland. Við töluðum við Björn Hafþór í dag.

Guðaveigar heitir íslensk mynd sem frumsýnd verður í kvikmyndahúsum annan í jólum og kemur úr smiðju Markelsbræðra, þeirra Arnar Marínós Arnarsonar og Þorkells Harðarsonar en þeir hafa framleitt sex gamanmyndir á síðustu fjórum árum á borð við Síðustu veiðiferðina, Saumaklúbbinn, Ömmu Hófí og Fullt hús svo eitthvað nefnt sem allar hafa fengið góðar viðtökur í kvikmyndahúsum. Við ræddum við þá félaga í dag.

MANNLEGI ÞÁTTURINN - FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR

Tónlist í þættinum

Irglová, Markéta - Vegurinn heim.

Matti Lauri Kallio, Tantanen, Hannu, Hakala, Petri - Nord waltz.

Hilmar Örn Garðarsson Vestmann - Veröld sem var.

Frumflutt

12. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,