• 00:05:09Pálmi Gestsson - föstudagsgestur
  • 00:22:30Pálmi Gestsson - seinni hluti
  • 00:39:24Matarspjallið - Stóra matarbókin

Mannlegi þátturinn

Föstudagsgesturinn Pálmi Gestsson og Stóra matreiðslubókin

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Pálmi Gestsson, nýorðinn 67 ára. Hann þarf auðvitað vart kynna eftir öll árin í Spaugstofunni, ótal hlutverk á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. síðast leikur hann í nýju leikriti, Sýslumaður dauðans í Borgarleikhúsinu, þar sem hann leikur föður sem deyr og sonur hans þarf leysa þrjár þrautir til heimta föður sinn aftur af biðstofu sýslumanns dauðans. En við fórum auðvitað með Pálma aftur í tímann á æskuslóðirnar fyrir vestan, í Bolungarvík, en þegar hann fór suður til Reykjavíkur í leiklistarnám um tvítugt þá var það aðeins í annað skiptiði sem hann var koma til höfuðborgarinnar. Í skemmtilegu spjalli fórum við með Pálma á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag þar sem til dæmis hæfileikar hans í eftirhermum fengu talsvert pláss..

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. var komið Gunnari koma með matreiðslubók og deila því sem í henni er með hlustendum. Þessi bók sem hann kom með er engin smá smíði, Stóra matarbókin, sem er er líklega hátt í tíu kíló þyngd, full af ljósmyndum, uppskriftum og fróðleik.

Tónlist í þættinum:

Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)

The Longest Time / Billy Joel (Billy Joel)

Can’t Keep it In / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

4. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,