Maður er nefndur

Leyft öllum aldurshópum

Valdimar Örnólfsson

Í þessum þætti ræðir Sigurður Valgeirsson við Valdimar Örnólfsson íþróttastjóra Háskóla Íslands. Valdimar segir frá ætt sinni og uppvexti á Suðureyri við Súgandafjörð. Hann segir frá búferlaflutningi fjölskyldunnar til Reykjavíkur árið 1945 og frá vinnu sinni sem sendill hjá Útvegsbanka Íslands. Hann segir frá skólagöngu sinni, m.a. frá veru sinni í Menntaskólanum í Reykjavík. Valdimar segir frá námi sínu í íþróttafræðum og frönsku í Köln í Þýskalandi en hann tók einnig skíðakennarapróf í Austurríki. Hann talar einnig um kennaraferil sinn við Menntaskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Valdimar rekur íþróttaferli sinn en hann keppti einkum í frjálsum íþróttum og á skíðum. Hann segir einnig frá þeim tíma er hann stjórnaði morgunleikfimi í Ríkisútvarpinu og frá söngferli sínum en hann stundaði söngnám í nokkur ár. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Maður er nefndur

Þættir úr safni sjónvarps.

Þættir

,