
Maður er nefndur
Þættir úr safni sjónvarps.
Í þessum þætti ræðir Sigurður Valgeirsson við Hjörleif Guttormsson náttúrufræðing og fyrrverandi alþingismann og ráðherra. Hjörleifur segir frá ætt sinni og uppruna og uppvaxtarárunum að Hallormsstað. Hann rekur námsferil sinn, segir m.a. frá námi sínu við Menntaskólann á Akureyri og frá veru sinni í háskólanum í Leipzig í Austur-Þýskalandi. Hjörleifur rekur starfsferil sinn, segir m.a. frá vinnu sinni sem náttúrufræðingur og frá starfi sínu að safnamálum og náttúruverndarmálum á Austurlandi. Hann talar um fyrstu afskipti sín af stjórnmálum á Akureyri, segir frá stjórnmálastarfi á Austurlandi og rekur feril sinn sem alþingismaður og ráðherra. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Þættir úr safni sjónvarps.