
Maður er nefndur
Þættir úr safni sjónvarps.
Í þessum þætti ræðir Jón Ormur Halldórsson við Salome Þorkelsdóttur fyrrverandi alþingismann. Salome segir frá ætt sinni og uppruna og frá uppvextinum í Reykjavík. Hún talar um nám sitt í Kvennaskólanum og segir frá sýn sinni sem ung stúlka á hernámið. Hún segir frá Mosfellssveitinni þar sem hún hefur búið stærstan hluta ævinnar, ræðir um starf sitt með Kvenfélagi Lágafellssóknar og talar um önnur félagsstörf. Salome segir frá setu sinni á Alþingi en hún var alþingismaður í 16 ár. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Þættir úr safni sjónvarps.