Maður er nefndur

Leyft öllum aldurshópum

Málmfríður Sigurðardóttir

Sigurður G. Valgeirsson ræðir við Málmfríði Sigurðardóttur fyrrverandi alþingismann. Málmfríður segir frá uppvexti á Arnarvatni í Mývatnssveit, daglegu lífi þar og fólkinu á bænum. Hún segir frá námi í Kvennaskólanum í Reykjavík og síðan frá lífi sem bóndi að Jaðri í Reykjadal í S.-Þingeyjarsýslu. Hún segir frá því er hún gerðist matráðskona á sumrin hjá Vegagerðinni en starfaði á veturna sem kennari í Grunnskólanum í Reykjadal og við Héraðsskólann. Síðar starfaði hún sem aðstoðarráðskona í Kristnesi. Hún segir frá því er hún tók þátt í spurningakeppni sem fram fór hjá útvarpinu og að hún var fengin til þess að gera útvarpsþætti fyrir Jónas Jónasson um eiginkonur íslenskra skálda. Málmfríður lýsir aðdraganda þess að hún fór á þing, kosningabaráttu og þingsetu fyrir Kvennaframboðið. Hún segir einnig frá því sem tók við að lokinni þingsetu - fyrst störfum við heimilisþjónustu í Reykjavík og síðar vinnu á Amtsbókasafninu á Akureyri. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Maður er nefndur

Þættir úr safni sjónvarps.

Þættir

,