
Maður er nefndur
Þættir úr safni sjónvarps.
Í þessum þætti ræðir Eva Ásrún Albertsdóttir við Kristínu Ingibjörgu Tómasdóttur fyrrverandi yfirljósmóður á Kvennadeild Landspítalans. Kristín segir frá lífinu á æskuslóðunum í Reykhólasveit. Hún segir frá skólagöngu sinni m.a. frá ljósmæðranáminu sem hún stundaði á árunum 1955-1956. Ljósmóðurstarfinu sinnti hún alla sína starfsævi og var yfirljósmóðir í 25 ár. Hún segir frá ýmsu varðandi ljósmóðurstarfið m.a. frá nýjungum sem hún innleiddi, kynnum sínum af fæðingardeildum erlendis, starfinu við Ljósmæðraskólann og talar um þær breytingar sem hafa átt sér stað undanfarna áratugi. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Þættir úr safni sjónvarps.